Innlent

Ríkasta prósentið jók eignahlut sinn um 49 milljarða á einu ári

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Eignaaukningu landsmanna má að stærstum hluta rekja til verðhækkana á fasteignamarkaði.
Eignaaukningu landsmanna má að stærstum hluta rekja til verðhækkana á fasteignamarkaði. vísir/anton brink
Eignir ríkasta eina prósents landsmanna jukust um 49 milljarða milli áranna 2014 og 2015. Þetta er meðal þess sem lesa má úr svari fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn Árna Páls Árnasonar, þingmanns Samfylkingarinnar.

Árni Páll Árnasonvísir/vilhelm
Meðal þess sem má einnig lesa úr svarinu er að eignir ríkustu fimm prósentanna jukust um 125 milljarða á sama tímabili. Hlutfall þess sama hóps af heildareign allra landsmanna stóð í stað milli ára og er rúmt 31 prósent.

Hópurinn sem samantektin miðast við samanstendur af einhleypum og hjónum en einstaklingar teljast sérstök fjölskylda frá sextán ára aldri.

„Það sem vekur sérstaklega athygli mína er að við erum hægt og rólega að feta okkur í átt að misvæginu sem var hér rétt fyrir hrun,“ segir Árni Páll Árnason. Þingmaðurinn hefur lagt fram sambærilega fyrirspurn ár hvert síðastliðin þrjú ár.

„Það er mikilvægt að hafa augun á þessari þróun stöðugt. Jöfnuður á ekki að vera umræðuefni í nokkra daga á ári rétt í kringum kosningar. Það er raunveruleg hætta á að þarna slitni í sundur aftur.“

Hann segir að aðgerðir núverandi ríkisstjórnar hafi aukið á ójöfnuðinn. „Skattbyrðin hefur lent á þeim sem minnst hafa og sértækar aðgerðir hafa sérstaklega nýst þeim sem mest eiga. Það blasir við að að öllu óbreyttu séum við að stefna í sama ástand og ríkti í aðdraganda hrunsins.“

Bjarni Benediktssonvísir/stefán
„Þegar horft er á skatttekjur eftir tekjutíundum er grundvallar­atriði að átta sig á því hvort laun hafi hækkað. Ef þau hækka þá þyngist skattbyrðin. Hér hafa laun allra tekjutíunda hækkað gífurlega,“ segir Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra. „Við verðum að muna að námsmenn, sumarstarfsmenn og fólk í hlutastarfi falla í neðstu tekjutíundirnar. Það er ekki eðlilegt að bera saman fólk í hlutastarfi saman við fólk í fullu starfi.“

Ráðherrann vísar meiningum Árna Páls, um að ríkisstjórnin hafi lítið aðhafst, á bug og bendir á skattalækkanir stjórnarinnar og niðurfellingu miðþreps tekjuskattsins. Fyrir langflesta hafi tekjuskattur lækkað um 3,3 prósentustig. „Maður með hálfa milljón í tekjur á mánuði stendur því uppi með 160 þúsund krónum meira í árslok en áður.“

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.


Tengdar fréttir

Laun þeirra ríku hækka hraðar

Laun á Íslandi hafa hækkað um 200 milljarða króna frá 2013. Ríkasti fimmtungur landsmanna fær nær 70 prósent þeirrar upphæðar í sinn skerf. Formaður Framsýnar segir stórátak þurfa í að jafna laun í landinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×