Bíó og sjónvarp

RIFF óskar eftir einnar mínútu myndum

Stefán Árni Pálsson skrifar
Mynd frá lokakvöldinu á RIFF á síðasta ári.
Mynd frá lokakvöldinu á RIFF á síðasta ári. vísir
Eins og undanfarin ár verður Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík í samstarfi við The One Minutes í Amsterdam.

Hátíðin óskar eftir einnar mínútu kvikmyndum en valdar myndir verða frumsýndar á hátíðinni í haust og munu í framhaldinu ferðast á milli safna og menningarstofanna á vegum The One Minutes.

Þemað að þessu sinni er „Heimur á krossgötum.“ Hægt er að senda inn mynd á theoneminutes.org/participate skilafrestur er 1. september.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×