Sport

Reynslunni ríkari eftir sigur og tvö töp

Pétur Marinó Jónsson skrifar
Bjarki Ómarsson sigraði í gær.
Bjarki Ómarsson sigraði í gær. Mjölnir
Þrír Mjölnismenn kepptu í MMA í Liverpool í gærkvöldi. Einn sigur og tvö töp er uppskera gærkvöldsins en kapparnir eru allir reynslunni ríkari eftir kvöldið.

Fyrstur af Íslendingunum var hinn tvítugi Bjarki Ómarsson. Hann mætti nautsterkum og reyndum andstæðingi en Bjarki sigraði allar þrjár loturnar og sigraði eftir dómaraákvörðun.

Andstæðingur hans sló eins og sleggja og sótti mikið en Bjarki hélt ró sinni og nýtti sér yfirburði sína – flott prófraun fyrir þennan tvítuga strák.

Næstur í búrið var Magnús Ingi Ingvarsson en hann mætti hinum ósigraða Tim Barnett. Magnús hafði mikla yfirburði í fyrstu lotunni og fyrri helming í annarri lotu en eftir þungt hnéspark í kinnbeinið snérist taflið við.

Barnett náði inn þungum hamarshöggum í gólfinu og eftir 2. lotu var Magnús hættur að sjá með öðru auganu vegna bólgu. Magnús og hornið ákváðu að hætta áður en 3. lotan byrjaði en þetta var fyrsta tap Magnúsar í MMA.

Lokabardagi kvöldsins var titilbardagi í léttvigt þar sem Birgir Örn Tómasson mætti Gavin Hughes. Í þessum fimm lotu bardaga náði Hughes nokkrum fellum á Birgi sem náði þó alltaf að standa aftur upp án þess að Hughes gæti gert nokkurn skaða.

Birgir náði aftur á móti nokkrum mjög góðum höggum í Hughes sem var vankaður um tíma. Andlit Hughes leit illa út eftir bardagann á meðan ekkert sást á Birgi. Dómararnir dæmdu þó Hughes sigurinn í vil á meðan Birgir hlaut sitt fyrsta tap í MMA.

Ítarlegri lýsingu á bardögunum má sjá á vef MMA Frétta hér.

Strákarnir eru allir reynslunni ríkari eftir harða bardaga gegn sterkum andstæðingum. Bardagamennirnir þrír geta lært talsvert af bardögum sínum og koma eflaust enn sterkari til leiks næst.

MMA

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×