Enski boltinn

Reynsluboltarnir hjá Man Utd voru ósáttir með Schweinsteiger á síðasta tímabili

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Schweinsteiger fylgist með eiginkonu sinni.
Schweinsteiger fylgist með eiginkonu sinni. vísir/getty
Samkvæmt heimildum Daily Mail voru eldri og reyndari leikmenn Manchester United ósáttir með Bastian Schweinsteiger á síðasta tímabili.

Schweinsteiger kom aðeins við sögu í 18 deildarleikjum með United í fyrra og var mikið frá vegna meiðsla.

Reynsluboltarnir hjá United voru ósáttir við Schweinsteiger á meðan hann var á hliðarlínunni vegna meiðsla.

Ana Ivanovic er númer 31 á heimslistanum í tennis.vísir/getty
Þjóðverjinn var duglegur að elta kærustu sína, og núverandi eiginkonu, tennisstjörnuna Önu Ivanovic, um heiminn en reynsluboltarnir hjá United vildu sjá Schweinsteiger eyða meiri tíma í endurhæfingu og töldu hann setja slæmt fordæmi fyrir yngri leikmenn liðsins.

Schweinsteiger virðist aldrei hafa verið inni í myndinni hjá José Mourinho, nýjum knattspyrnustjóra United, sem lét hann æfa með varaliðinu og tilkynnti honum að hann gæti yfirgefið félagið.

Schweinsteiger rauf þögnina í gær þegar hann skrifaði á Twitter að hann ætlaði sér ekki að yfirgefa United og væri klár ef kallið kæmi.

Schweinsteiger sagði ennfremur að United væri síðasta félagið sem hann myndi spila með í Evrópu á ferlinum.

Schweinsteiger, sem varð heimsmeistari með þýska landsliðinu 2014, lék við góðan orðstír með Bayern München áður en hann fór til United sumarið 2015.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×