Fótbolti

Reina kominn til Napoli

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Vísir/Getty
Bayern München staðfesti í dag að félagið hefði samið um starfslok við markvörðinn Pepe Reina.

Spánverjinn Reina kom til Bayern fyrir ári síðan og var varamarkvörður Manuel Neuer.

Hann vill þó fá að spila meira og fékk því að fá sig lausan frá félaginu og samdi um leið við ítalska félagið Napoli.

Reina lék með Napoli tímabilið 2013-14 sem lánsmaður frá Liverpool. Hann hóf ferilinn hjá Barcelona, fór svo til Villarreal árið 2002 og svo Liverpool þremur árum síðar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×