Bíó og sjónvarp

Reese verður Tinker Bell

Adda Soffía Ingvarsdóttir skrifar
Leikkonan er einnig einn framleiðandi myndarinnar.
Leikkonan er einnig einn framleiðandi myndarinnar. Vísir/Getty
Leikkonan Reese Witherspoon mun fara með hlutverk Tinker Bell í nýrri leikinni kvikmynd byggðri á persónunni þekktu úr ævintýrinu um Peter Pan.

Witherspoon verður þar að auki einn framleiðandi myndarinnar. Ekki hefur verið gefið út hverjir munu fara með önnur hlutverk í myndinni.

Má því búast við miklu Disney-kvikmyndafári á næstunni, en auk myndarinnar um Tinker Bell mun leikkonan Emma Watson fara með hlutverk Fríðu í kvikmyndinni Fríðu og dýrinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×