Innlent

Réðst á mann með barefli í miðborginni

Gissur Sigurðsson skrifar
Árásarmaðurinn var handtekinn og vistaður í fangageymslu vegna rannsóknar málsins.
Árásarmaðurinn var handtekinn og vistaður í fangageymslu vegna rannsóknar málsins. vísir/heiða
Ráðist var á karlmann með barefli í miðborginni rétt fyrir klukkan tvö í nótt og hann barinn. Hann slasaðist nokkuð og var fluttur á slysadeild, en nokkur vitni að árásinni gátu bent lögreglu á hvar árásarmanninn væri líklega að finna.

Þar var hann handtekinn og vistaður í fangageymslu en ekki kemur fram í skeyti lögreglu hvert ósætti mannanna var eða hvort árásin var tilefnislaus.  Alls voru tíu vistaðir í fangageymslum lögreglunnar í nótt vegna margvíslegra brota.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×