Fótbolti

Redknapp: Miðjumenn Arsenal gætu ekki tæklað kvöldmatinn sinn | Sjáðu mörkin

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Oliver Giroud, framherji Arsenal, sársvekktur í gærkvöldi.
Oliver Giroud, framherji Arsenal, sársvekktur í gærkvöldi. vísir/getty
Arsenal er í vondum málum í Meistaradeildinni og stefnir allt í að liðið falli úr leik í 16 liða úrslitum fimmta árið í röð.

Það tapaði á heimavelli, 3-1, fyrir franska liðinu Monaco í gær, en síðasta markið fékk það á sig á fjórðu mínútu í uppbótartíma, þremur mínútum eftir að minnka muninn í 2-1.

Sjá einnig:Berbatov: Arsenal hafði ekki efni á því að vanmeta okkur

Monaco var mun sterkara á miðjunni þar sem Geoffrey Kondogbia, leikmaður franska liðsins, fór á kostum, en hann skoraði einnig fyrsta mark leiksins.

„Arsenal var stöðvað á miðjunni. Mér fannst Coquelin ekki svo slakur en hann var tekinn út af þegar hann fékk gula spjaldið. Þá var Arsenal bara með Cazorla, frábæran sóknarmann, Rosicky og Alex Oxlade-Chamberlain inn á miðjunni,“ sagði Jamie Redknapp, sérfræðingur Sky Sports, eftir leikinn.

„Sú miðja gæti ekki tæklað kvöldmatinn sinn! Kondogbia var stórkostlegur fyrir Monaco. Hann er nákvæmlega sá leikmaður sem Arsenal þarf á að halda,“ bætti hann við.

Graeme Souness, fyrrverandi leikmaður og stjóri Liverpool, tók undir með enska landsliðsmanninum fyrrverandi.

Sjá einnig:Wenger: Fótboltaleikir vinnast ekki á pappír

„Arsenal var svo óskipulagt. Arsene Wenger reynir alltaf að spila einhvern frábæran fótbolta. Liðið er með alla þessa skapandi leikmenn sem vilja sækja en öll lið sem afreka eitthvað eru með mismunandi leikmenn innan sinna raða. Þau eru bæði með leikmenn sem geta sótt og þá sem losa pressuna á sitt eigið lið,“ sagði Graeme Souness.

„Ég hef sagt það margsinnis áður, að það er alltof auðvelt að spila á móti Arsenal. Meðal gott lið í Evrópu valtaði yfir það í kvöld.“

Kodogbia kemur Monaco yfir: Berbatov kemur Monaco í 2-0: Uxinn minnkar muninn fyrir Arsenal: Carrasco klárar leikinn, 3-1:

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×