Ranieri hvetur sína menn til að grípa tækifærið í þessari „brjáluðu deild“ Tómas Þór Þórðarson skrifar 2. febrúar 2016 12:00 Claudio Ranieri er að gera frábæra hluti með Leicester. vísir/getty
Claudio Ranieri, knattspyrnustjóri Leicester, segir að sínir menn verði að nýta tækifærið í toppbaráttunni í ensku úrvalsdeildinni á þessari leiktíð því tímabilið hefur verið stórskrítið. Eftir 23 umferðir er Leicester á toppi deildarinnar með þriggja stiga forskot á Arsenal, en lærisveinar Ranieri taka á móti Liverpool þegar 24. umferðin hefst í kvöld. Ítalinn fékk leyfi til að styrkja hópinn fyrir átökin á seinni hluta leiktíðarinnar og fékk til sín Demarai Gray frá Birmingham og varnarmanninn Daniel Amartey frá FCK í Danmörku. „Þetta er brjáluð deild,“ sagði Ranieri á blaðamananfundi fyrir leikinn gegn Liverpool. „Okkur gengur alveg frábærlega en mér finnst sum lið vera að spila undir getu.“ „Ég veit ekki af hverju það er. Það er eitthvað skrítið að Leicester sé á toppnum en það hentar okkur vel. Við erum að spila vel og viljum vera áfram á toppnum því það er mikið af stórliðum sem eru langt frá sínum vanalega stað í töflunni.“ „Deildin er skrítin í ár og lið eins og við getum gert góða hluti. Þetta er rétta árið fyrir okkur að keyra á þetta því þetta er ekki hefðbundið tímabil í ensku úrvalsdeildinni,“ sagði Claudio Ranieri.Leikur Leicester og Liverpool verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport 2 HD klukkan 21.35 í kvöld.
Enski boltinn Mest lesið Sjáðu ótrúlegan flautuþrist Þorvaldar Orra Körfubolti Magnaðasta mark sumarsins á fyrsta degi þess? Fótbolti „Tel mjög vafasamt að klukkan hafi verið sett af stað á réttum tíma“ Körfubolti „Vakna í hádeginu á morgun og fer að hugsa um Valsarana“ Körfubolti LA Rams velja nýliðana í 16 milljón dollara glæsivillu Sport „Frábær úrslit fyrir okkur og félagið“ Fótbolti „Fyrst og fremst var þetta vinnuframlag frá öllum“ Fótbolti Ivan Toney á innkaupalista Manchester United Fótbolti Hristir hausinn yfir „glórulausum“ og „smásálarlegum“ ummælum Körfubolti Uppgjörið: Njarðvík - Þór Þ. 98-97 | Þorvaldur Orri tryggði Njarðvík sigur með flautukörfu í framlengingu Körfubolti Fleiri fréttir Einstefna í Brighton Krókur Liverpool á móti bragði Palace á mikilli siglingu Líflausir Liverpoolmenn skrá sig út úr titilbaráttunni Bruno sneri taflinu við gegn botnliðinu Liverpool hefur viðræður við Arne Slot Slapp við rautt þrátt fyrir fólskubrot: „Einhver þarf að útskýra þetta fyrir mér“ Tveir nítján ára handteknir fyrir nauðgun Fyllir Slot upp í tómarúmið sem Klopp skilur eftir sig? Segir sína menn ekki verðskulda Evrópusæti Segir sitt hlutverk að fá leikmenn til að trúa á verkefnið Skytturnar tylltu sér á toppinn með stæl Skorar tíðast allra en missir enn af leikjum Liverpool Segir viðbrögð fjölmiðla til skammar Højlund kvartaði yfir því að Fernandes gæfi ekki nógu oft á sig Heldur tryggð við Aston Villa þrátt fyrir áhuga annarra liða „Sýna að þetta sé Chelsea FC en ekki Cole Palmer FC“ Fannst Pogba týna sjálfum sér eftir að hann varð heimsmeistari Segir að Ten Hag sé búinn að vera Forest vill hljóðupptöku dómaraherbergins frá leiknum gegn Everton Var sagður taka við Liverpool en hefur rætt við West Ham „Kem því ekki í orð hversu léleg frammistaðan var“ Hjólaði alla leið frá Mongólíu til að sjá United spila Antony gagnrýndur fyrir fagnið „Úrslitin kostuðu Ten Hag starfið“ Ratcliffe hljóp maraþon og dreif sig svo á Wembley Ásaka dómara um óheilindi og hlutdrægni „Hefði hann klippt táneglurnar værum við ekki að ræða þessa vítaspyrnukeppni“ B-deildarliðið hársbreidd frá því að fara alla leið Liverpool jafnar efsta sætið að stigum Sjá meira
Uppgjörið: Njarðvík - Þór Þ. 98-97 | Þorvaldur Orri tryggði Njarðvík sigur með flautukörfu í framlengingu Körfubolti
Uppgjörið: Njarðvík - Þór Þ. 98-97 | Þorvaldur Orri tryggði Njarðvík sigur með flautukörfu í framlengingu Körfubolti