Fótbolti

Ramos kom Real Madrid aftur til bjargar

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Sergio Ramos hefur reynst Real Madrid drjúgur í síðustu tveimur deildarleikjum liðsins.
Sergio Ramos hefur reynst Real Madrid drjúgur í síðustu tveimur deildarleikjum liðsins. Vísir/Getty
Sergio Ramos reyndist bjargvættur Real Madrid annan leikinn í röð þegar liðið mætti Deportivo La Coruna í kvöld.

Á annarri mínútu í uppbótartíma skoraði Ramos sigurmark Real Madrid með skalla eftir hornspyrnu Tonis Kroos. Lokatölur 3-2, Real Madrid í vil.

Með sigrinum endurheimtu Madrídingar sex forystu á Barcelona á toppi spænsku úrvalsdeildarinnar.

Fyrri hálfleikurinn var markalaus en eftir fimm mínútna leik í þeim seinni kom Álvaro Morata Real Madrid yfir með sínu fimmta deildarmarki í vetur.

Þá var komið að þætti Joselus. Hann kom inn á sem varamaður á 58. mínútu og fimm mínútum síðar var hann búinn að skora. Joselu var ekki hættur og hann kom Deportivo yfir með sínu öðru marki á 65. mínútu. Tvö mörk á þremur mínútum og gestirnir komnir með forystuna.

Heimamenn gáfust þó ekki upp og Mariano Diaz jafnaði metin á 84. mínútu eftir undirbúning frá öðrum varamanni, Lucas Vázquez.

Það var svo Ramos sem tryggði Real Madrid öll þrjú stigin í uppbótartíma eins og áður sagði. Um síðustu helgi tryggði hann Real Madrid jafntefli gegn Barcelona með marki á lokamínútu leiksins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×