Enski boltinn

Ragnar tryggði Þrótti sigur fyrir norðan

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Hlynur Hauksson og félagar unnu góðan sigur.
Hlynur Hauksson og félagar unnu góðan sigur. vísir/arnþór
Þróttur gerði góða ferð til Akureyrar í kvöld og sótti þrjú stig í greipar KA með 1-0 sigri. Ragnar Pétursson skoraði eina mark leiksins á 90. mínútu.

KA-menn hafa verið á miklum skriði undanfarið, en þurftu að sætta sig við þetta svekkjandi tap í kvöld. Þeir eru með 20 stig í fimmta sæti deildarinnar eftir þrettán umferðir og geta misst Ólsara upp fyrir sig.

Þróttarar skutu sér aftur á móti upp í annað sæti deildarinnar með sigrinum, en enda kvöldið mögulega sæti neðar ef ÍA vinnur Grindavík.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×