Fótbolti

Ragnar og félagar úr leik í Evrópudeildinni

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Úr leik liðanna í Rússlandi í kvöld.
Úr leik liðanna í Rússlandi í kvöld. Vísir/AFP
Rússneska liðið Krasnodar er úr leik í Evrópudeild UEFA eftir 1-1 jafntefli gegn LOSC Lille í kvöld.

Ari kom Rússunum yfir í fyrri hálfleik en Nolan Roux jafnaði metin fyrir Lille þegar ellefu mínútur voru til leiksloka.

Krasnodar er með þrjú stig í neðsta sæti H-riðils og á ekki lengur möguleika á að komast áfram í 32-liða úrslit keppninnar. Ragnar Sigurðsson lék allan leikinn í liði Krasnodar í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×