Fótbolti

Ragnar og félagar enn ósigraðir

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Ragnar í Rússlandi
Ragnar í Rússlandi vísir/getty
Krasnodar skellti Torpedo Moskva 3-0 i rússnesku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Ragnar Sigurðsson lék að vanda allan leikinn fyrir Krasnodar.

Krasnodar hefur nú unnið þrjá leiki í röð eftir að hafa gert jafntefli í tveimur fyrstu umferðunum. Ragnar hefur farið mikinn í hjarta varnarinnar sem hefur haldið hreinu í leikjunum þremur.

Markalaust var í hálfleik en Krasnodar datt í gang í seinni hálfleik og lyfti sér upp í 4. sæti deildarinnar með 11 stig í 5 leikjum. Torpedo Moskva er í 11. sæti með 4 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×