Lífið

Púsluðu saman nýrri plötu

Sex manna hljómsveitin Amiina gefur út plötuna Puzzle á miðvikudaginn. Útgáfutónleikar verða einnig haldnir á Nasa.
Sex manna hljómsveitin Amiina gefur út plötuna Puzzle á miðvikudaginn. Útgáfutónleikar verða einnig haldnir á Nasa.
Hljómsveitin Amiina gefur út sína aðra plötu, Puzzle, á miðvikudag. Tveir karlkyns meðlimir hafa gengið til liðs við þessa fyrrum stúlknasveit.

Önnur plata hljómsveitarinnar Amiinu, Puzzle, kemur út hérlendis á miðvikudaginn í samstarfi við Smekkleysu. Sama dag verða haldnir útgáfutónleikar á Nasa þar sem Sin Fang Bous hitar upp. Tveimur dögum seinna heldur sveitin síðan í tveggja vikna tónleikaferð um Evrópu.

Þrjú ár eru liðin síðan fyrsta stóra plata Amiinu, Kurr, kom út við góðar undirtektir. Síðan þá hefur margt gerst. Farið var í tónleikaferð með Sigur Rós 2008 auk þess sem tvö Amiinu-börn komu í heiminn.

Að auki hafa þau tíðindi átt sér stað að Amiina er ekki lengur stúlknasveit því tveir karlkynsmeðlimir hafa bæst í hópinn, trommarinn Magnús Tryggvason Elíassen og raftónlistarmaðurinn Guðmundur Vignir Karlsson (Kippi Kaninus).

„Við fórum að vinna með Magnúsi 2007 þegar við vorum að túra með Kurri. Vorið 2008 héldum við síðan stóra tónleika í Hafnarhúsinu á Listahátíð Reykjavíkur og Vignir tók líka þátt í þeim tónleikum. Þá bjuggum við til ný lög og upp úr því urðum við í raun að þessari útgáfu af bandinu," segir María Huld Markan Sigfúsdóttir úr Amiinu.

„Þetta er í rauninni þróun á því sem fyrir var. Hljómsveitir breytast og fara að gera öðruvísi tónlist. Okkur langaði til að þróast og halda áfram," segir hún og bætir við að nýja platan sé töluvert frábrugðin Kurri. Ryþmapælingarnar og raftónlistaráhrifin séu meiri en áður.

Spurð um nafnið á plötunni, Puzzle eða púsl, segir María það eiga sér eðlilegar skýringar. „Það er svolítið púsl að skipuleggja hljómsveit með sex manns með fjölskyldur, börn og skólagöngu," segir hún en fjórir meðlimir Amiinu eru í háskólanámi. „Líka hvernig við vinnum tónlistina því það gerist svolítið í skömmtum. Við púslum þessu svolítið saman og hendum á milli okkar hugmyndum. Hún er búin að púslast saman þessi plata í langan tíma."

Forsala miða á útgáfutónleikana á Nasa fer fram í Smekkleysu og á Midi.is. Hægt er að kaupa nýju plötuna og fá aukaefni í bónus á heimasíðu Amiinu.

freyr@frettabladid.is






Fleiri fréttir

Sjá meira


×