Tónlist

Plötusnúður túlkar nýtt lag frá Of Monsters and Men

Stefán Árni Pálsson skrifar
Natalie G. Gunnarsdóttir gerir þetta einstaklega vel.
Natalie G. Gunnarsdóttir gerir þetta einstaklega vel. vísir
Íslenska hljómsveitin Of Monsters and Men hefur gefið út nýtt myndband við lagið Hunger sem verður á næstu plötu sveitarinnar,  Beneath the Skin, sem kemur út 8. júní hér á landi.

Það er plötusnúðurinn Natalie G. Gunnarsdóttir sem túlkar texta lagsins á sinn hátt.

Sjá einnig: Siggi Sigurjóns fer á kostum í myndbandi Of Monsters and Men: "Of spennandi og skrýtið til að hafna því“

Um er að ræða fjórða textamyndbandið frá OMAM en fyrr höfðu komið út samskonar textamyndbönd við lögin Crystals og I of the Storm og Empire. Siggi Sigurjónsson fór á kostum í fyrsta myndbandinu og þá við lagið Crystals.

Sjá einnig: „Ekki oft sem maður fær svona tækifæri svo ég stökk af stað“

Því næst var komið að Atla Frey Demant sem túlkaði lagið I of the Storm. Leikkonan Guðrún Bjarnadóttir sá síðan um að túlka lagið Empire.

Neðst í fréttinni má sjá öll fjögur myndböndin.

Þann 4. maí hefst tónleikaferð hljómsveitarinnar. Fyrst er förinni heitið til Norður-Ameríku en sveitin heldur síðan til Evrópu í júní.

Önnur breiðskífa Of Monsters And Men kemur út hér á landi þann 8. júní á vegum Record Records.

Platan kemur til með að innihalda ellefu lög þegar hún kemur út erlendis en hér á landi, og á viðhafnarútgáfum, munu lögin Backyard og Winter Sound bætast við. Þau verða því alls þrettán.

Síðasta ári hefur sveitin varið í Los Angeles og á Íslandi með upptökustjóranum Rich Costey sem hefur meðal annars unnið með sveitum á borð við Muse, Foster The People og Death Cab For Cutie.

Síðan fyrsta plata sveitarinnar kom út hefur leiðin legið upp á við og hljómsveitin spilað á fjölmörgum hátíðum víða um heim. Einnig hafa lög hennar heyrst í kynningarmyndböndum meðal annars fyrir iPhone 5 og The Secret Life of Walter Mitty auk þess að lagið Silhouetts var sérsamið fyrir kvikmyndina The Hunger Games: Cathing Fire.

Lagalisti Beneath the Skin:

Crystals

Human

Hunger

Wolves Without Teeth

Empire

Slow Life

Organs

Black Water

Thousand Eyes

I Of The Storm

We Sink

Backyard

Winter Sound


Tengdar fréttir

Hlustaði ekki á annað næstu fimm dagana

Of Monsters and Men gaf út textamyndband við lagið I of the Storm í gær, lagið er af væntanlegri plötu. Í forgrunni myndbandsins er Atli Freyr Demantur.

OMAM á tónleikum: Gatorade og ávextir baksviðs

Vísir hitti tvo meðlimi Of Monsters and Men skömmu áður en sveitin tróð upp í Portland í Bandaríkjunum í vikunni. Hljómsveitin er farin aftur í tónleikaferðalag sem mun að minnsta kosti standa yfir fram í nóvember.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×