Innlent

Pinnið verður nauðsynlegt

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Ekki verður lengur hægt að ýta eingöngu á græna takkann.
Ekki verður lengur hægt að ýta eingöngu á græna takkann. vísir/getty
Þann 19. janúar næstkomandi þurfa handhafar greiðslukorta að staðfesta með pin-númeri þegar þeir greiða með greiðslukortum fyrir vörur.

Hingað til hafa korthafar sem muna ekki pinnið getað staðfest greiðslur með því að ýta á grænan takka á posunum. Það verður ekki hægt frá þeim tíma.

Hægt er að nálgast pinnið í netbönkum, öppum eða hjá þeim banka, sparisjóði eða kortafyrirtæki sem gefur út kortið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×