Guðmundur Andri Thorsson

Guðmundur Andri Thorsson

Greinar eftir Guðmund Andra úr Fréttablaðinu.

Fréttamynd

Nýyrðasmíðin er hvítigaldur

Maðurinn frá Wales virtist standa í þeirri trú að hér væri rekin einstrengingsleg hreintungustefna þar sem orðum eins og „ókei“ og „frík“ og „brúka“ sé úthýst jafnharðan af þungbúnum orðatollvörðum...

Fastir pennar
Fréttamynd

Mengun

Langar mig að hlusta á leikþátt um æsta konu í umferðinni fyrir klukkan hálf átta að morgni? Nei. Þarf ég þess? Nei. Hef ég gott af því? Nei.

Fastir pennar
Fréttamynd

Frægur sigur

Megas sextugur - Hann er Elvis-eftirherman sem hljómar stundum eins og langdrukkinn íslenskur sveitaprestur á 19. öld að tóna, stundum eins og ljúfur drengur, stundum eins og kátur púki - alltaf eins og rokk </font /></b />

Fastir pennar
Fréttamynd

Skipbrot átakastjórnmálanna

Átakastjórnmál má kalla þau vinnubrögð þegar menn sem komist hafa í valdastöðu fyrir atbeina stjórnmálaflokka ákveða að fara sínu fram án tillits til sjónarmiða þess fólks sem málin varða hverju sinni, og sé almenn andstaða við einhverja tiltekna málsmeðferð skuli hún að engu höfð en málið keyrt af offorsi í gegn til þess að sýna styrk sinn í eitt skipti fyrir öll.

Fastir pennar
Fréttamynd

Um sekúlarisma

"Mér finnst nærtækara að benda fólki á að lesa Önnu Valdimarsdóttur eða aðra höfunda vandaðra sjálfshjálparbóka en að leita að hjálpræði í þrugli gömlu spámannanna; fólk þarf á lifandi orði halda og það þarf að eiga í lifandi samfélagi við það sem það les," skrifar Guðmundur Andri Thorsson...

Skoðun
Fréttamynd

Eins og geisli

Þjóðfélag okkar er sekúleríserað - veraldlegt. Og sekúleríseringin hefur haldist í hendur við frjálsa hugsun og þróun vísinda sem leitt hafa til þess að menn hafa komist á snoðir um eitt og annað sem stangast á við kenningar biblíunnar...

Fastir pennar
Fréttamynd

Hið innhverfa úthverfi

Á meðan fólk virðist líta svo á að um fjallveg sé að fara milli búða og treystir sér ekki öðruvísi en í jeppa milli húsa er Smárinn í Kópavogi miðjan: eitt stórt mall og svo breiðgötur á milli búða sem ekki má fara fótgangandi um: það er hingað sem búðirnar flýja. Hér líður McDonaldsi vel.

Fastir pennar
Fréttamynd

Lopapeysur á þing!

Á alþingi á að spranga um innan um jakkalakkana og dragtadömurnar, fólk á gallabuxum, í flíspeysum og lopapeysum, fólk af holdi og blóði, ólitgreint fólk.

Fastir pennar
Fréttamynd

Skurðavernd

Þegar Sigríður Anna var spurð um viðbrögð sín við þessum hugmyndum sá hún á því öll tormerki að endurheimta votlendi landsins. Hún bar það ekki einu sinni við að kalla þetta athyglisverðar rannsóknir. Henni virtist ekkert um þetta gefið...

Fastir pennar
Fréttamynd

Bílkynhneigð

Gamall slagari gengur - "I bless the day I found you" - á meðan ungar manneskjur sýna kenndir í garð bíls sem samkvæmt venjulegum mælikvörðum myndu útheimta tafarlausa sálfræðimeðferð... </font /></b />

Fastir pennar
Fréttamynd

Af evrópskum kattamat

Ég hef heyrt um kött sem borðaði ristað brauð með sultu og ýmsa dynti varðandi mat þekkja allir sem búa með þessum forvitnu dýrum. En aldrei hef ég séð kött borða gulrót. </font /></b />

Fastir pennar
Fréttamynd

Sælir eru friðflytjendur

Ímynd vopnlausrar smáþjóðar er ómetanleg auðlind og mun afla þjóðinni miklu meiri virðingar, velvildar og sæmdar en að halda áfram að fylgja núverandi Bandaríkjastjórn í blindni út í þær orrustur sem hún á í vændum í baráttu sinni við hillingarnar í eyðimörkum Miðausturlanda... </font /></b />

Fastir pennar
Fréttamynd

Risarækjan

Við sitjum uppi með valdamenn sem standa að hækkunum á þjónustu Orkuveitunnar um leið og þeir segja okkur að hún eigi skítnógan pening og skimi eftir nýjum tækifærum á sviði fjarskipta. Framsókn er eins og risarækja í stjórnkerfi borgarinnar, smælki sem breiðir sig út yfir allt, vex og vex......

Fastir pennar
Fréttamynd

Hver á þetta að vera?

Þessi íslenska fyrirmynda-umræða tók á sig sérkennilega mynd hér í Fréttablaðinu fyrir jólin þegar Eysteinn Þorvaldsson sá ástæðu til að bera af sér sakir um að vera hvorki meira né minna en fyrirmynd að sjálfum morðingjanum í Kleifarvatni Arnaldar Indriðasonar... </font />

Fastir pennar
Fréttamynd

Hver var hann?

Allir menn virðast hafa þessa ríku þörf fyrir tilbeiðslu æðri afla, átrúnað á einhverju sem ofar er talið mannlegum skilningi. Þetta er innbyggð tilfinning fyrir samhengi tilverunnar og stað mannsins í alheiminum, og mikilvægt að trúarlíf fái að vaxa fram í samfélögum í samhengi við staðhætti og náttúrufar á hverjum stað... </font /></b />

Fastir pennar
Fréttamynd

Fagnaðarerindið

Davíð var ekki að draga athygli frá neinni óhæfu þegar hann bauð Bobby Fischer hingað – þvert á móti: boðið dregur athygli að óhæfu, þeim endemislögum um útlendinga sem Björn Bjarnason stóð fyrir og lét setja eftir dönskum fyrirmyndum, en Íslendingar ættu nú að vita allt um ríkjandi viðhorf þar í landi til annarra þjóða…

Fastir pennar
Fréttamynd

Enn á hikstiginu?

Borgaryfirvöld virðast á þeirri skoðun að ráðstefnur um til dæmis útflutning á dilkakjöti eða eyrnabólgur eigi betur heima í tónlistarhúsi en óperur. Það er vissulega sjónarmið ...

Fastir pennar
Fréttamynd

Athugasemd við málflutning

Eiginlega neyðist maður til að gera athugasemd við málflutning Davíðs í síðustu viku í umræðum á alþingi um hernað Íslendinga á hendur Írökum og þær vöflur sem eðlilega eru komnar á Hjálmar Árnason...

Fastir pennar
Fréttamynd

Öryggið er í mannréttindum

Hætt er við að viðvarandi skortur á ógnvöldum yrði til þess að slík lögregla færi að njósna um og ofsækja fólk sem mótmælir virkjunum eða notar aðrar aðferðir við að koma á framfæri vanþóknun sinni á framferði stjórnvalda ...

Fastir pennar
Fréttamynd

Söngur kvarkanna

Er þetta ekki viðfellilegasti og blíðlegasti þjóðsöngur í heimi? Í laginu sjálfu er einhvern heiðríkja sem nær vel góðum sumardegi hér. Í því ríkir hljóðlát tilbeiðsla og auðmýkt í stað hins hefðbundna belgings slíkra tónsmíða

Fastir pennar
Fréttamynd

Reiðareksmenn

Málflutningi reiðareksmanna má lýsa svona: í fyrsta lagi er hitastig ekkert að hækka; í öðru lagi er það gott að hitastig sé að hækka… í þriðja lagi er of seint að gera nokkuð við því að hitastig sé að hækka…

Fastir pennar
Fréttamynd

Að hengja handlangara fyrir smið

Í rauninni var frjálsri samkeppni þröngvað upp á Íslendinga við inngönguna í EES. Fram að því aðhylltist valdastéttin á Íslandi þá óorðuðu kennisetningu að samkeppni í viðskiptum væri ekki bara óæskileg hér á landi heldur líka óhugsandi í svo smáu samfélagi.

Fastir pennar
Fréttamynd

Ráðvillt þjóð kýs sér leiðtoga

Þetta er eins og að eiga erfitt með að ákveða hvort maður eigi að bjóða væntanlegum matargestum upp á lambalæri eða hrossabjúgu, hvort maður þiggi frímiða á tónleika með Rolling Stones eða Bay City Rollers, hvort maður velur í landsliðið Eið Smára eða einhvern framherja Héraðssambands suður-Langnesinga.

Fastir pennar
Fréttamynd

Fylking á ferð

Mæt og virt baráttukona, kennari og fyrrum borgarfulltrúi, Elín G. Ólafsdóttir, skrifaði grein hér á dögunum þar sem hún lagði út af ævintýrinu um Unga litla sem hélt að himinninn væri að hrynja og lét skolla ginna sig inn í greni sitt með fyrirsjáanlegum endalokum. Skilaboð Elínar til kennara eru: standið saman, trúið ekki fagurgala lágfótu, allt sanngjarnt fólk styður ykkur.

Fastir pennar
Fréttamynd

Þegar Rússarnir komu...

Kannski er brýnasta pólitíska verkefni okkar um þessar mundir að reyna að fá Davíð Oddsson og Halldór Ásgrímsson ofan af því að reyna með öllum ráðum að tosa hingað til okkar "stríðið gegn hryðjuverkum".

Fastir pennar
Fréttamynd

Að tala sundur eða saman

Dálæti Íslendinga á fólki að rífast er raunar slíkt að fyrsti alíslenski sjónvarpsþátturinn sem búinn var til var Á öndverðum meiði þar sem Gunnar G. Schram sat á milli tveggja kalla að rífast. Þetta þótti geysigóð skemmtun og ég man að við strákarnir í Karfavoginum lékum þennan þátt stundum milli Roy og Rogers leikja.

Fastir pennar
Fréttamynd

Öll börn eiga að vera undanþegin

Alræmdasta dæmið um það hvernig forystumenn kennarasamtakanna gefa dauðann og djöfulinn í það sem fólkinu á götunni finnst er náttúrlega hinar furðulegu synjanir á undanþágum til handa fötluðum börnum

Fastir pennar
Fréttamynd

Við þurfum að treysta dómurum

Okkur borgurum þessa lands er það höfuðnauðsyn að geta treyst Hæstarétti og dómum hans. Þótt manni kunni stundum að sýnast að lagatæknilegir annmarkar á málatilbúnaði verði til þess að sekir menn sleppi með sýknu og manni gremjist það þá er það enn ríkari ástæða fyrir því að dóminn skipi fólk sem maður grunar ekki um græsku.

Fastir pennar
Fréttamynd

Þetta verkfall er slys

Þessir atvinnumenn hafa með öðrum orðum misreiknað sig. Þeir lögðu of mikið undir, þeir hafa hagað sér eins og fjárhættuspilari sem ofmetur eigin klókindi og fyrir vikið virðast viðræðurnar komnar í óleysanlegan hnút.

Fastir pennar
Fréttamynd

Já já – nei nei

Nú er Framsóknarflokkurinn kannski fyrst og fremst hinn pólitíski armur Landsvirkjunar og greinir sig að öðru leyti í fáu frá Sjálfstæðisflokknum – lætur íslenska þjóð meira að segja skrifa upp á feigðarflan Bandaríkjamanna í Írak.

Fastir pennar