Bakþankar

Bakþankar

Fréttamynd

Blessuð skepnan

Eitt þeirra hugtaka sem öðlast hafa nýtt líf í umræðunni er ofdekur. Hér áður fyrr átti það einkum við frekjudósina í bekknum sem fór alltaf að grenja ef ekki var látið undan öllum kröfum. Eftirlátssemi forríkra foreldranna var yfirleitt á allra vitorði.

Bakþankar
Fréttamynd

88 og 300

Hafnfirðingar (fyrir utan álfa og huldufólk) eru 23.275 talsins og búa (eins og nafnið bendir til) í Hafnarfirði. Alcan er fjölþjóðlegt fyrirtæki með 53.000 starfsmenn í 41 landi. Hafnarfjarðar er fyrst getið í heimildum um 1400, þó er minnst á Hafnarfjörð í Landnámabók. Bjarni Sívertsen sem nefndur er faðir Hafnarfjarðar hóf að versla í Firðinum árið 1794. Alcan var stofnað rúmri öld síðar, árið 1902, sem kanadískt dótturfyrirtæki málmiðnaðarrisans Pittsburgh Reduction Company.

Bakþankar
Fréttamynd

Fátækt er ekki lögmál

Ég hitti einu sinni konu frá El Salvador. Hún sagði mér að landið væri sannkölluð matarkista en samt væri eymd og fátækt landlæg þar, sem ætti að vera algjör óþarfi. Vegna fríverslunarsamnings Ameríkuríkja væri hins vegar nánast allur matur fluttur úr landinu til Bandaríkjanna þar sem landeigendur fá betra verð fyrir hann.

Bakþankar
Fréttamynd

Að láta vaða

Ef ég ætti að velja eitt slagorð, þekkt úr bransanum, sem myndi lýsa Íslendingum best og fanga hugarfarið sem einkennir mörlandann af hvað mestri nákvæmni, þá myndi ég líklega velja slagorðið sem íþróttavöruframleiðandinn Nike hefur notast við á undanförnum árum: Just do it.

Bakþankar
Fréttamynd

„Normalísering andskotans“

Ef maður setur upp gleraugun sem skipta hlutum í svart og hvítt, gott og vont, Guð og Andskotann stendur Guð fyrir það sem er gott. Þið vitið, að hjálpa bágstöddum, segja alltaf satt, vera góður við börn og allt það. Andskotinn er vondur. Þeir sem fylgja andskotanum drekka, dópa, hórast, nauðga og myrða. Andskotinn er samviskulaus og þeir sem kunna að setja upp svarthvítu gleraugun hafa flestir vit á því að vera ekkert að abbast uppá hann.

Bakþankar
Fréttamynd

Gerviöryggisrugl

Fyrir 11. september létu flugvallastarfsmenn það gjarnan nægja að spyrja: Fékkstu hjálp við að pakka? Við þessu var flest annað en „Já, síðskeggjaður maður með lambhúshettu lét mig hafa pakka sem ég held að sé vekjaraklukka," rétt svar.

Bakþankar
Fréttamynd

Billjónsdagbók 28.3

ICEX 7.516,56, þegar ég steig inn í nýju túrbósturtuna í morgun, og Dow Jones 12.481,01 þegar ég fékk í mig straum af steríógræjunum í sturtunni. Það er ókyrrð á markaðnum. Tekur á taugarnar.

Bakþankar
Fréttamynd

Forrest Gump og ég

Síðasta haust gerði ég samning við sjálfa mig um að hlaupa 10 kílómetra í einni lotu á næstu menningarnótt. Sumum finnst það auðvitað algjört prump, þá væntan­lega þeim sem sjálfir skreppa milli landshluta á fæti án þess að blása úr nös eða þá hinum sem hreyfa sig einkum milli ísskáps og sófa. Fyrir mig sem vill en ekki getur hljómaði vegalengdin sem mikils háttar afrek.

Bakþankar
Fréttamynd

Um trúarstyrk þjóðarinnar

Í nýstofnuðu lýðveldi dreymdi mig eins og fleiri ungmenni um að verða einhvern tímann milljónamæringur. Sá draumur hefur ræst en samt er ég alltaf jafnblankur. Draumar virðast hafa tilhneigingu til að rætast á annan hátt en maður gerir ráð fyrir.

Bakþankar
Fréttamynd

Dauðar sálir?

Afnám fyrningarfrests í grófum kynferðisbrotamálum er áfangasigur fyrir þolendur slíkra ódæðisverka og vafalítið heillaskref fyrir íslenskt réttarkerfi. Í byrjun nýliðinnar viku hlustaði ég á nokkra þingmenn í útvarpinu gera upp nýlokið þing og voru þeir allir sammála um hér væri á ferð mikil réttarbót.

Bakþankar
Fréttamynd

Straumsvík

Nú skilst mér að fjölskylduboðin suður í Hafnarfirði logi í rökræðum á milli stuðningsmanna stækkunar í Straumsvík og þeirra sem eru alfarið á móti. Sjálfur er ég á móti þessari stækkun af alls kyns ástæðum og þar sem ég er jafnframt í framboði í kjördæminu hef ég fengið minn skerf af heitum umræðum í heimahúsum, sem sjálfsagt eiga eftir að færast í vöxt á næstu dögum, því eftir viku verður kosið.

Bakþankar
Fréttamynd

Maður er fermdur

Það hefur víst ekki farið framhjá neinum að fermingarvertíðin nálgast. Þó ekki væri nema vegna uppþotsins út af stúlkunni sem var vænd um að stilla sér upp eins og klámstjarna á forsíðu fermingarbæklings Smáralindar - bæklings sem reyndar var frekar hallærislegur í auglýsingum sínum á brúnkuspreyi fyrir fermingarbörnin, en enginn tók eftir því af því að allir voru svo uppteknir við að sverja það af sér að hafa séð nokkuð kynferðislegt við forsíðumyndina.

Bakþankar
Fréttamynd

Íslenska stéttaskiptingin

Til eru menn á 100 sinnum betri launum en næsti maður. Stéttaskipting fyrirfinnst þó varla á Íslandi og forríkt fólk býr við það vandamál vegna smæðar landsins að lítil tækifæri gefast til að láta ljós sitt skína með alla peningana. Hér vantar allt háklassa snobb, búðir sem selja dót á geðveiku verði og veitingahús sem rukka tíu þúsund kall fyrir kaffibollann.

Bakþankar
Fréttamynd

Krækt í Kvennaskólapíu

Þegar ég var krakki voru sýndar afar óhugnanlegar myndir um skaðsemi reykinga í niðurgröfnum bíósal Álftamýrarskóla þar sem fólk, hægfara sem hemúlar, dró á eftir sér súrefniskúta á milli þess sem það var ambúterað. Ég vissi að hvorugt myndi auðvelda mér lífið og lét því sígaretturnar eiga sig.

Bakþankar
Fréttamynd

Blindu börnin hennar Evu

Eitt af því sem ég hef lært á óralangri ævi er, að öll burðumst við með einhverja þá fötlun sem í frjálslyndara samfélagi væri hægt að kalla eiginleika. Hjá sumum eru skorðurnar augljósar eins og til dæmis heyrnarleysi eða blinda á meðan þær eru duldari hjá flestum.

Bakþankar
Fréttamynd

Neytandinn sem auðlind

Botnlaus viðskiptahalli þjóðarinnar bendir til þess að verðmætasta auðlind hennar, neytendastofninn, sé gróflega ofnýttur, enda hefur hvaða sótraftur sem er ótakmarkað veiðileyfi á hinn íslenska neytanda. Því væri skynsamlegt að koma hér á kerfi til að vernda neytandann og tryggja að ekki verði svo nærri honum gengið að hann og þjóðin öll verði gjaldþrota.

Bakþankar
Fréttamynd

Fagri Hafnarfjörður?

Senn taka Hafnfirðingar afdrifaríkustu ákvörðunina sem tekin hefur verið um framtíð bæjarins síðan Hansakaupmenn réðu þar ríkjum. Spurt er hvort bæjarbúar vilji að stærsta álbræðsla Evrópu rísi í hjarta Hafnarfjarðar.

Bakþankar
Fréttamynd

Stríðið

Nú eru um það bil fjögur ár síðan að ég rölti ásamt Tóta félaga mínum niður á Lækjartorg í mildu veðri á föstudegi, í kaffipásu frá vinnu, til þess að mótmæla stuðningi Íslands við innrásina í Írak. Þarna var talsvert af fólki. Búið var að setja upp pall og þar voru ræður haldnar.

Bakþankar
Fréttamynd

Dularfulla fólkið

Einu sinni var ég að leita að saumastofu í Hafnarfirði. Ég hringdi dyrabjöllu í húsi sem ég hélt að væri rétta heimilisfangið og til dyra kom feitur, tattúeraður maður á sextugsaldri á pínulitlum, fjólubláum nærbuxum einum fata. Klukkan var þrjú að degi til.

Bakþankar
Fréttamynd

Þegar Guð reddaði mér

Nú er hátíð í bæ hjá prestum og verslunarfólki. Akkorð. Enda heill árgangur á leið í ,,fullorðinna manna tölu”. Þrátt fyrir áfangann munu krakkarnir hanga lengi enn á Hótel Mömmu, vel nærðir og ánægðir með fermingaruppskeruna, að lágmarki 5000 kall á hvern ættingja, en mun meira frá náskyldum.

Bakþankar
Fréttamynd

Billjónsdagbók 14,3

ICEX 7.573 þegar ég færði Mallí morgunkaffið, og Dow Jones 12.276 þegar Mallí leit upp frá því að lesa Fréttablaðið og sagði sisona að sig vantaði einhvern innri pörpós með lífinu. „Sjáðu femínistana,“ sagði hún. „Þær hafa svo mikinn innri pörpós að þær geta séð eitthvað dónalegt út úr Dimma­limm.“

Bakþankar
Fréttamynd

Öfgar sem eyðileggja alla umræðu

Vegna þess að tungumálið okkar er svo lifandi breytist merking sumra orða jafnvel á skömmum tíma. Margir þora að viðurkenna að orð sem lýsa kvenkyni eru frekar notuð sem skammaryrði - eins og píka og kelling - á meðan enginn myndi lýsa karlkyns hálfvita honum til háðungar sem tippi og kalli.

Bakþankar
Fréttamynd

Ótímabærar áhyggjur

Gamall skólabróðir minn fær svartsýnisköst öðru hverju. Fyrir helgina klifaði hann á því að konur muni „ráða því hvaða ríkisstjórn verður mynduð“. Bölsýnismaðurinn lét ekki huggast þótt honum væri bent á að komandi kosningar snúist fyrst og fremst um hefðbundið framsal þjóðarinnar á ákvörðunarrétti sínum til handa fjórflokknum sem svo dyggilega hefur staðið vörð um hin karllægu gildi hingað til.

Bakþankar
Fréttamynd

Efnislegt

Pólitík er oft skrýtin skrúfa eins og sést til dæmis í hinu sérstaka auðlindaákvæðismáli. Framsóknarmenn hótuðu semsagt að sprengja ríkisstjórn ef ákvæði um sameign þjóðarinnar á sjávarauðlindum yrði ekki fest í stjórnarskrá.

Bakþankar
Fréttamynd

Í bíó

Ég vann í tvö ár í kvikmyndahúsi með skóla. Það var að flestu leyti mjög óspennandi upplifun, en átti sín móment. Stundum gat ég hlustað heilt kvöld á Gufuna. Einu sinni heyrði ég viðtal við búfræðikennara sem tókst að vitna sex sinnum í Halldór Laxness á tuttugu mínútum, þar á meðal sagði hann „lífið er saltfiskur“.

Bakþankar
Fréttamynd

Fagra kvenveröld

Það er allt í steik. Þetta vitum við öll, og stundum eftir að maður hefur hlustað á fréttirnar finnst manni óhugsandi að hér verði mannapar á kreiki eftir tvö hundruð ár. Að minnsta kosti ekki mannapar í jakkafötum. Græðgi, gróðurhúsa-áhrif og almenn vitleysa verður örugglega búin að útrýma tegundinni, eða breyta í stökkbreytt grey sem vafra um leifar stórborga veifandi frumstæðum kylfum.

Bakþankar
Fréttamynd

Það var barn í dalnum

Nýlega flutti Ríkissjónvarpið frétt af manni sem steyptist á höfuðið ofan í brunn svo hann rotaðist. Slysið varð að nóttu til utan alfaraleiðar en þangað hafði maðurinn flúið undan hópi manna sem ógnaði honum.

Bakþankar
Fréttamynd

Celeb

Loks hefur það ræst sem marga grunaði: Angeline Jolie vill eignast eitt barn í viðbót við þau þrjú sem hún á fyrir. Það virðist ekki meira en vika síðan hún var ólétt, í gær var hún í flóttamannabúðum í Súdan og í dag er hún sem sagt komin til Víetnam til að ættleiða fjórða barnið. Röskari manneskja er vandfundin.

Bakþankar
Fréttamynd

Landsfundur óákveðinna

Almenn samstaða hefur náðst um að landsfundur óákveðinna kjósenda verði annaðhvort haldinn eða ekki haldinn áður en framboðsfrestur fyrir næstu alþingiskosningar rennur út, samkvæmt skoðanakönnun sem Fréttablaðið lét gera og mun birtast í Morgunblaðinu eftir nokkra daga.

Bakþankar
Fréttamynd

Verðfangar

Á dögunum fengum við parið þá undursamlegu hugmynd að bregða okkur út fyrir landssteinana í eina litla helgarferð, svona rétt til að hlaða batteríin áður en undirritaður steypir sér í kosningabaráttu og fer að hlaupa um kjördæmið eins og byssubrandur til þess að tala uppi á kössum í stórmörkuðum, taka í höndina á borgurunum og dreifa bæklingum.

Bakþankar