Fótbolti

Óvænt tap hjá Hólmari og félögum

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Hólmar spilaði allan leikinn fyrir Rosenborg í kvöld.
Hólmar spilaði allan leikinn fyrir Rosenborg í kvöld. vísir/getty
Hólmar Örn Eyjólfsson og félagar í Rosenborg töpuðu óvænt fyrir Bodö/Glimt á útivelli í norsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld.

Aðeins eitt mark var skorað í leiknum en það gerði Trond Olsen strax á 2. mínútu.

Hólmar lék allan leikinn í miðri vörn Rosenborg sem er þrátt fyrir tapið í toppsæti norsku deildarinnar með 33 stig, þremur stigum á undan Stabæk.

Þetta var aðeins annað tap Rosenborg í deildinni á tímabilinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×