Íslenski boltinn

Óttar Magnús seldur til Molde

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Óttar Magnús í Víkings-treyjunni.
Óttar Magnús í Víkings-treyjunni. vísir/tom
Hinn stórefnilega framherji Óttar Magnús Karlsson hefur verið seldur frá Víkingi til norska liðsins Molde.

Óttar Magnús snéri aftur til uppeldisfélags síns frá Ajax fyrir síðasta sumar og spilaði mjög vel fyrir Víkinga. Hann skoraði 9 mörk í 22 leikjum í deild og bikar.

Hann var svo valinn efnilegasti leikmaður Pepsi-deildarinnar af leikmönnum deildarinnar.

Molde er búið að vera með Óttar Magnús í sigtinu lengi og það kemur því ekki á óvart að félagið sé búið að kaupa leikmanninn efnilega.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×