Innlent

Örlög flugbrautarinnar bíða niðurstöðu Rögnunefndar

Kristján Már Unnarsson skrifar
Isavia fékk fyrirmæli frá fyrrverandi innanríkisráðherra, Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, fyrir rúmu ári um að hefja undirbúning þess að leggja af minnstu flugbraut Reykjavíkurflugvallar. Ráðherra tók þó skýrt fram að ákvörðun um hvort brautinni yrði lokað yrði byggð á tillögum svokallaðrar Rögnunefndar.

Harðar deilur eru um hvort flugbraut 06/24 sé nauðsynleg fyrir innanlandsflugið. Vinnuhópur, sem vann að áhættumati, klagaði Isavia fyrir jól til fimm ráðherra fyrir að leysa hópinn fyrirvaralaust frá störfum en birta samtímis niðurstöður Verkfræðistofunnar Eflu um nothæfisstuðla. Aðkoma Eflu er tortryggð vegna tengsla framkvæmdastjóra verkfræðistofunnar við Knattspyrnufélagið Val og fjárfestingafélag Valsmanna, sem á ríkra hagsmuna að gæta.

Isavia hefur nú skýrt frá því að það hafi verið vegna alvarlegra athugasemda frá Samgöngustofu sem áhættumatshópurinn var leystur upp. Hagsmunaaðilar innan hópsins hafi véfengt ný mæligögn, og viljað byggja á eldri og lakari veðurgögnum og einnig huglægu mati.

Nýtt áhættumat Isavia með nýjum gögnum Eflu er nú komið á borð Samgöngustofu en forstjóri hennar, Þórólfur Árnason, kvaðst í dag ekkert vilja tjá sig um málið meðan það væri í vinnslu, né um hæfi Eflu.

Vinnu við áhættumatið má rekja til samkomulags, sem gert var haustið 2013, milli ríkis, borgar og Icelandair. Í framhaldi af því sendi innanríkisráðherra bréf, þann 30. desember 2013, þar sem Isavia var falið að hefja undirbúning að lokun brautarinnar en jafnframt mælti ráðherra fyrir um formlega öryggisúttekt.

„Rétt er að ítreka að flugbrautinni skal þó ekki lokað eða aðrar ákvarðanir teknar sem leiða til þess að flugbraut 06/24 verði tekin úr notkun á meðan verkefnastjórn, sem nú starfar undir forystu Rögnu Árnadóttur skv. samkomulagi ríkisins, Reykjavíkurborgar og Icelandair Group, er enn að störfum og ákvörðun á grundvelli tillagna hennar liggur ekki fyrir,“ segir í bréfi innanríkisráðuneytis, fyrir hönd ráðherra, til Isavia.

Til stóð að svokölluð Rögnunefnd lyki störfum nú um áramótin en nú er ljóst að starf hennar dregst fram á vor. Það virðist því blasa við að flugbrautin umdeilda fær að lifa að minnsta kosti út þennan vetur. 


Tengdar fréttir

Áhættumatshópur látinn víkja fyrir verkfræðistofu Valsmanns

Áhættumatshópur á vegum Isavia, sem taldi óásættanlegt að loka minnstu flugbraut Reykjavíkurflugvallar, hefur sent ríkisstjórninni alvarlegar athugasemdir við að hópurinn skyldi fyrirvaralaust hafa verið lagður niður fyrir jól.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×