Skoðun

Orka og geta

Fanney Birna Jónsdóttir skrifar
Það er gríðarlega mikilvægt að styrkja innviði heilbrigðiskerfis, menntakerfis og félagslega kerfisins til þess að sporna við fjölgun [öryrkja],“ sagði Ellen Calmon, formaður Öryrkjabandalagsins í föstudagsviðtali Fréttablaðsins fyrir helgi. Þar ræddi hún um fjölgun öryrkja, en nýlega var sagt frá því að öryrkjum hefði fjölgað um 29 prósent frá árinu 2005. Ellen sagði fjölgunina náttúrulega, í takti við fólksfjölgun. Það væri hins vegar hvorki hagur Öryrkjabandalagsins né samfélagsins að öryrkjum fjölgaði sérstaklega. „Það er forgangsröðun fjármuna sem veldur fjölgun örorkulífeyrisþega.“

Þeim hefur sem sagt fjölgað verulega sem hafa skerta starfsorku og þurfa því að reiða sig á framfærslu ríkisins. Það er miður, ekki aðeins fyrir samfélagið heldur fyrst og fremst fyrir einstaklingana sjálfa. Flestir vilja vera virkir þátttakendur í samfélaginu og félagsleg áhrif þess að vera útilokaður frá vinnumarkaði eru gríðarleg.

Ellen segir í viðtalinu að kerfið sé vinnuletjandi, vinnumarkaðurinn ekki nægilega sveigjanlegur, kjaraskerðingar of miklar og öryrkjum séu sett mörk á öllum mögulegum stöðum.

Niðurstöðu nefndar sem unnið hefur að heildarendurskoðun almannatryggingakerfisins, sem sett var á laggirnar af Pétri heitnum Blöndal, þáverandi þingmanni Sjálfstæðisflokksins, er beðið með eftirvæntingu. Vinna nefndarinnar miðaði að því að horfið yrði frá kerfi örorkumats og tekið upp starfsgetumat í staðinn. Vonast var til að nefndin myndi skila af sér niðurstöðum sínum fyrir áramót en svo varð ekki.

Nýr formaður nefndarinnar, Þorsteinn Sæmundsson, þingmaður Framsóknarflokksins, segir tillögurnar muni gera öryrkjum og ellilífeyrisþegum auðveldara að starfa.

Ellilífeyrisþegar verði þá virkir lengur á vinnumarkaði og þeir sem hafa skerta starfsgetu sæki í að vinna. „Það þarf samræmt átak mjög margra ef þetta á að geta orðið að veruleika,“ segir Þorsteinn. Ríki, sveitarfélög og almennur vinnumarkaður þurfi til að mynda að bjóða þessum þjóðfélagshópum upp á hlutastörf.

Nefndin hefur verið við störf í á þriðja ár. Gert er ráð fyrir að breytingarnar verði kostnaðarsamar, til að byrja með að minnsta kosti. Kerfið sjálft sem og vinnumarkaðurinn mun þurfa tíma til að aðlagast.

Málaflokkurinn er á forræði félagsmálaráðherra, sem hefur átt í vök að verjast með frumvörp sín um breytingar á húsnæðismálakerfinu sem ráðherrann hefur lagt mikla áherslu á að komist til framkvæmda. Illa hefur gengið hjá ráðherra að fá málið í gegnum ríkisstjórn og andstaða samstarfsflokksins á þingi er fyrirsjáanleg. Því er hætt við að önnur stór barátta, sem er dýr og mun taka einhvern tíma að borga sig gæti orðið erfið fyrir félagsmálaráðherra. Sérstaklega stuttu fyrir kosningar.

Það er mikil þörf á því að gera fólki í meiri mæli kleift að hjálpa sér sjálft. Að veita því aðstoð við að komast áfram á eigin verðleikum. Sama þó vegalengdin verði stutt.




Skoðun

Skoðun

Saman gegn ríkisofbeldi

Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson,Örlygur Steinar Arnaldsson,Sigurhjörtur Pálmason,Simon Valentin Hirt,Kristbjörg Arna E. Þorvaldsdóttir,Ari Logn,Margrét Rut Eddudóttir skrifar

Sjá meira


×