Heilsa

Orðið sjálfsagt að verðlauna börn með sælgæti

Birta Björnsdóttir skrifar
Margir eru með betra og hollara matarræði að markmiði í Meistaramánuði. Þar vegur eflaust þungt hjá mörgum ákvörðunin um að sleppa öllu sælgæti og gosdrykkjum. Sjónvarpskonan Friðrika Hjördís Geirsdóttir, Rikka, tók góða upphitun fyrir Meistaramánuð með framtaki sínu Sykurlaus september.

„Sykurlaus september byrjaði þannig að mér fannst fólk í kringum mig vera mikið að raða í sig mat án þess að hugsa mikið útí hvað það væri að setja ofaní sig. Mig langaði sjálfri að reyna það á eigin skinni hvaða áhrif sykurleysi myndi hafa á mig. Að auki fannst mér vanta umræðu í samfélagið um hvað það er mikill sykur í öllum matvælum sem okkur standa til boða,“ segir Rikka

 Viðtökurnar við sykurlausum september hafa verið framar björtustu vonum.

„Mér datt aldrei í hug að ég myndi fá svona mikil viðbrögð við þessu,“ segir Rikka.

Hún ákvað að reyna að draga fjölskylduna með sér í átakið;

„Ég ræddi þetta við strákana mína, sem eru sex og sjö ára, og þeir tóku mjög vel í þetta. Mér fannst líka gaman þegar ég frétti að þeir hefðu dregið vini sína með sér í þetta í skólanum. Það er hinsvegar töluvert erfiðara að fá börn til að taka þátt í sykurlausum september, og það er kannski ekki síst vegna þess umhverfis sem við búum við. Það er orðið svo sjálfsagt að við verðlaunum börnin okkar með sælgæti,“ segir Rikka, sem ákvað að verðlauna syni sína með skemmtilegri uppákomu í lok hverrar sykurlausrar viku. Bíóferð og hellaferð var meðal þess sem fjölskyldan gerði saman.

Rikka segir tilganginn með sykurlausum september ekki endilega að losa sig við allan sykur fyrir fullt og allt, heldur hafi markmiðið frekar verið að vekja fólk til umhugsunar og skapa umræðu. Hún segir sykurlausan september hafa haft góð áhrif á sig.

„Mér finnst ég vera jafnari í orku og svo finnst mér ég hugsa skýrar. Mér finnst ég sjá mun á húðinni minni og á líkamanum,“segir Rikka.


Tengdar fréttir

Ætlar að njóta augnabliksins

Sylvía Ósk Rodriguez hefur sett sér þrjú markmið í Meistaramánuði. Eitt markmiðanna er nokkurs konar framhald á markmiði sem hún setti sér í Meistaramánuði í fyrra en þá ákvað hún að borða engan sykur í mánuðinum. Hún hefur lést um þrjátíu kíló síðan.

5 bestu snjallsímaforritin fyrir skipulagðara líf

Heilsuvísir er búinn að taka saman 5 forrit sem þú getur hlaðið niður í símann þinn og hjálpa þér við að ná betri árangri í þeim verkefnum og markmiðum sem að þú ætlar að setja þér.

Mikilvægt að ætla sér ekki um of

Maður sér það of oft að fólk fer allt of geyst af stað og ætlar sér of mikið á stuttum tíma. Ansi margir gugna þá eftir nokkrar vikur og finnst þeir vera komnir á byrjunarreit.

Allir geta orðið meistarar

"Meistaramánuður er í raun lífstílsátak þar sem fólk á öllum aldri skorar sjálft sig á hólm og reynir að bæta sig á einhvern hátt. Allir sem eru tilbúnir að setja sér einhver markmið og fylgja þeim eftir í einn mánuð geta tekið þátt,“ segir Þorsteinn Kári Jónsson, einn stofnenda Meistaramánuðar.

Allir með í Meistaramánuði

Birta Björnsdóttir hefur að undanförnu sankað að sér hvetjandi og skemmtilegu efni sem tengist meistaramánuðinum á einhvern hátt.

Þetta er svo mikil fíkn

"Ég verð örugglega bara sveittur og skjálfandi einhverstaðar úti í horni,“ segir verðandi meistarinn Bobby Breiðholt.

Gönguvænt umhverfi hvetjandi

Margir átta sig ekki á að lítil hversdagsleg hreyfing eins og stuttar gönguferðir geta skipt miklu máli fyrir heilsuna. Fyrir utan það er svolítið ósanngjarnt að bíll, þessi dýra fjárfesting, sé sjálfkrafa aðgöngumiði að borginni,“ segir Herborg sem fer flestra sinna ferða gangandi, hjólandi eða í strætó.

10 hollráð fyrir Meistarmánuð

Markmið er góð leið til þess að láta drauma sína og óskir rætast en það er ekki það sama að hugsa um markmiðin og að framkvæma þau.

Mikilvægur hlekkur að sýna sjálfum sér samkennd og vinsemd

Margir setja sér markmið í Meistaramánuði en til þess að ná þeim þarf að hafa jákvæða afstöðu til þeirra og temja sér sjálfsvinsemd. Borghildur Sverrisdóttir er höfundur bókarinnar Hamingjan eflir heilsuna sem kemur út síðar í mánuðinum. Hún segir jákvætt

Meistaramánuður á Twitter

Nú er Meistaramánuður að hefjast og einhverjir farnir að setja sér markmið. Því er tilvalið að skoða hvað Íslendingar höfðu að segja á Twitter í upphafi #meistaram.

Munaður í Meistaramánuði

Nú er Meistaramánuður og um að gera að setja sér háleit markmið, og auðvitað á það einnig við um ástarlífið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×