Innlent

Ómar spenntur fyrir ísgöngum

Ómar Ragnarsson.
Ómar Ragnarsson.
„Það er spurning hvort það fáist fjármagn í þetta. Það vill enginn leggja fjármagn í neitt nema álver," segir Ómar Ragnarsson um hugmyndir um gerð ísganga í Langjökli. Hann segist þó vera spenntur fyrir hugmyndinni og sendir Borgfirðingum hvatningarkveðjur.

Sérfræðingar komu nýverið á fund byggðarráðs Borgarbyggðar og kynntu hugmyndir um gerð ísganga í jöklinum. Óskuðu þeir eftir aðkomu sveitarfélagsins að undirbúningsfélagi um verkefnið. Greint var frá málinu á fréttavefnum Skessuhorn.is fyrr í dag.

Hugmyndin er að gera ísgöng vestan til í Langjökli, norðan við Geitlandsjökul, en þangað liggur allgóður vegur frá vinsælum ferðaþjónustustöðum eins og Húsafelli og Reykholti. Grafið verður 30 metra niður í jökulinn í þéttan jökulís í þeim tilgangi að gera þar göng og hvelfingar.

Ómar bendir á að málið sé á byrjunarstigi. Stjórnmálamenn í Borgarbyggð hafi ekki tekið afstöðu til verkefnisins. „En þetta er jákvætt og ég vona að fólkið gefist ekki upp strax."

Ómar segir hafa séð fjölmarga íshella hér á landi í gegnum árin. Af hverjum ástæðum hafi landsmenn ekki verið spenntur fyrir því að nýta þá með einhverjum hætti í ferðamennsku. Álver sé það eina sem komist að hjá stórum hópi Íslendinga þegar atvinnuuppbygging ber á góma.

Hann segir að Íslendingar verði að læra að reynslu annarra þjóða. „Áratuga reynsla er af því að nota íshótel í Lapplandi, bæði Svíþjóðarmegin og Finnlandsmegin, sem aðdráttarafl fyrir ferðamenn," segir Ómar og bætir við fleiri ferðmenn heimsæki Lappland á veturna heldur en Ísland allt árið. Þá bendir Ómar á að íshótelin á Lapplandi þurfi að reisa árlega ólíkt hugsanlegum ísgöngum og íshótelum hér á landi.


Tengdar fréttir

Áhugasamir um gerð ísganga í Langjökli

Sérfræðingar komu nýverið á fund byggðarráðs Borgarbyggðar og kynntu hugmyndir um gerð ísganga í Langjökli. Óskuðu þeir eftir aðkomu sveitarfélagsins að undirbúningsfélagi um verkefnið. Þetta kemur fram á fréttavefnum Skessuhorn.is



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×