Innlent

Ólafur Ragnar svarar því ekki hvort réttlætanlegt sé að geyma eignir í skattaskjólum

Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar
Ólafur Ragnar hefur ákveðið að gefa kost á sér í sjötta sinn og það vegna óvissunnar sem myndaðist eftir birtingu Panama-skjalanna.
Ólafur Ragnar hefur ákveðið að gefa kost á sér í sjötta sinn og það vegna óvissunnar sem myndaðist eftir birtingu Panama-skjalanna. Vísir/Anton Brink
Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands segir að þakka beri það starf sem unnið hefur verið í kjölfar Panama-lekans. Hann segir upplýsingarnar sem komu í ljós mikilvæga þjónustu við almenning. Þetta kemur fram í skriflegu svari Ólafs við eftirfarandi fyrirspurn Vísis:

Hvert er álit Ólafs Ragnars á einstaklingum sem geyma eignir í aflandsfélögum í skattaskjólum? Telur hann það réttlætanlegt? 

Ólafur svarar ekki fyrirspurninni beint en segist ávallt hafa verið gagnrýninn á kerfi aflandsfélaga. 

„Ég hef ætíð verið gagnrýninn á kerfi aflandsfélaga og tel að hin mikla aukning þeirra á undanförnum áratugum sé afleiðing þess kerfis á alþjóðlegum fjármálamarkaði sem tók að þróast af krafti uppúr 1980 og hefur svo verið ríkjandi á Vesturlöndum um árabil,“ skrifar Ólafur.

Sjá einnig: Ólafur og Dorrit með tengsl við aflandsfélag

„Það er mikilvægt að Ísland fylgi umbótum á þessu sviði og nýjum reglum sem OECD og ýmis ríki hafa sett. Upplýsingar úr Panamaskjölunum eru mikilvæg þjónusta við hagsmuni almennings og styrkja nauðsynlegar umbætur á fjármálakerfum. Það starf ber því að þakka."

Svarið berst eftir að fregnir bárust þess efnis að Moussaieff-fjölskyldan, tengdafjölskylda forsetans, sé nefnd í Panama-skjölunum. Fjölskylda Dorritar Moussaieff átti aflandsfélagið Lasca Finance Limited, sem er að finna í fyrrnefndum Panama-skjölum. Hvorki Dorrit né Ólafur Ragnar Grímsson, sem neitað hefur því ítrekað að tengjast aflandsfélögum, segjast hafa heyrt um félagið áður.

Ólafur Ragnar Grímsson hefur ítrekað neitað því, í kjölfar umfangsmikils gagnaleka frá Mossack Fonseca, að hann eða Dorrit eigi félög á aflandseyjum. Í nýlegu viðtali við CNN þvertók hann fyrir að hann eða fjölskylda hans tengdist slíkum félögum á nokkurn hátt. 

Hann hyggst bjóða sig fram til forseta í sjötta sinn og rökstuddi það meðal annars þeim rökum að óvissan sem væri uppi eftir birtingu Panama-skjalanna væri svo mikil. 


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×