Ólafur Helgi fyrstur til að gefa blóð í 200. sinn Atli Ísleifsson skrifar 20. mars 2017 09:55 Ólafur Helgi í blóðgjöf árið 2006. Vísir/Stefán
Ólafur Helgi Kjartansson mun í dag mæta í Blóðbankann þar sem hann mun gefa blóð í 200. sinn. Þetta er í fyrsta sinn sem blóðgjafi nær þessum áfanga. Ólafur Helgi starfar sem lögreglustjóri á Suðurnesjum og hefur gefið um níutíu lítra af blóði. Í tilkynningu frá Blóðbankanum segir að gera megi ráð fyrir að hann hafi með gjöfum sínum hjálpað milli tvö og þrjú hundruð manns. Þar sem hver blóðgjöf tekur um hálftíma megi gera ráð fyrir að hann hafi verið á annað hundrað klukkustundir í Blóðbankanum á ævi sinni. Ólafur Helgi mun mæta í Blóðbankann í blóðgjöf klukkan 11 í dag. „Ólafur Helgi gaf blóð í fyrsta sinn á síðasta ári sínu í Menntaskólanum í Reykjavík þann 19. mars 1972, þá 18 ára gamall. Síðan hefur hann gefið blóð reglulega og oft haft mikið fyrir því að komast í blóðgjöf. Ólafur var um tíma blóðflögugjafi og kom þá í blóðskiljuvél reglulega. Eftir það hefur ferillinn verið nokkuð samfelldur og það þrátt fyrir 18 ára búsetu á Ísafirði, en allar Reykjavíkurferðir voru skipulagðar þannig að nauðsynleg erindi bæði vegna starfa og setu í bæjarstjórn og bæjarráði fellu saman við blóðgjöf nokkurn veginn á þriggja mánaða fresti. Árið 2002 var Ólafur Helgi kosinn í stjórn Blóðgjafafélags Íslands og tveimur árum síðar sem formaður og gegndi því hlutverki í 10 ár, til ársins 2014. Auk þess að vera einn af okkar dyggustu blóðgjöfum hafa fáir komist með tærnar þar sem Ólafur hefur hælana varðandi öflun blóðgjafa. Meðan Ólafur bjó á Selfossi virkjaði hann fjöldann allann af fólki til að verða blóðgjafar og voru oft slegin met við blóðsöfnun þar. Eftir að Ólafur svo fluttist á Suðurnesin hafa þau styrkst og eflst sem blóðsöfnunarstaður og er nú svo komið að fjöldi þeirra sem koma í bílinn í Reykjanesbæ er oft fleiri en á Selfossi,“ segir í tilkynningunni.
Mest lesið María Sigrún látin fara úr Kveik Innlent Svona var stemmningin á lokaspretti forsetaefnanna í Hörpu Innlent Dregur framboðið til baka Innlent Ákvörðun áfrýjunardómstólsins áfall og stórt skref aftur á bak Erlent „Þessi ákvörðun var ekki tekin í Valhöll“ Innlent „Ef ég get flogið þremur gerðum af þyrlum þá get ég tekið ákvörðun fyrir þjóðina“ Innlent Auglýsa eftir „eiganda“ fjármuna Innlent „Óskiljanlegt að menn skuli leggjast svona lágt“ Innlent Niðri fyrir vegna Útlaganna Innlent Viktor stal senunni: Hefði ekki haft tíma til að safna ef hann væri í vinnu Innlent Fleiri fréttir Rifjaði upp þegar forsetinn bjargaði landinu Skemmdarvargar á eftir útilistaverkum eftir Einar Jónsson Krafturinn í gosinu gæti aukist verulega haldi kvikusöfnun áfram Þrettánda nafnið bætist við Fimm af tólf skiluðu einungis rafrænum meðmælum Gylfi leiðir samhæfingu vegna Grindavíkur María Sigrún látin fara úr Kveik Viktor stal senunni: Hefði ekki haft tíma til að safna ef hann væri í vinnu Forsetaefni streymdu í Hörpu Ásdís Rán, Arnar og Ástþór mætast í Pallborðinu „Ef ég get flogið þremur gerðum af þyrlum þá get ég tekið ákvörðun fyrir þjóðina“ Rekin vinalega á brott en vonast til að fá að vera áfram „Þessi ákvörðun var ekki tekin í Valhöll“ „Óskiljanlegt að menn skuli leggjast svona lágt“ Dregur framboðið til baka Niðri fyrir vegna Útlaganna Svona var stemmningin á lokaspretti forsetaefnanna í Hörpu Kínverjar vara Bandaríkjamenn við að stíga á „rauðu strikin“ Samtök hernaðarandstæðinga fordæma „kúvendingu“ á afstöðu Íslands Leyfislausar tjaldbúðir og sundsprettur eftir lokun Framboðslistar opinberaðir eftir helgi Auglýsa eftir „eiganda“ fjármuna Glæsileg þjóðbúningamessa á Hvolsvelli Ögurstund og opnunarhóf hjá frambjóðendum Forsetaslagurinn, leit að eiganda fjármuna og rjómablíða Fjölbreytt verkefni hjá björgunarsveitum í dag Útlagar spreyjaðir gylltir Helga Þórisdóttir komin með lágmarksfjölda meðmæla Sinueldur í Reykjanesbæ Pétur Einarsson leikari látinn Sjá meira