Sport

Okkar maður er efstur

Bjarni Þór Sigurðsson skrifar
Guðmundur og Hrímnir í svaka sveiflu.
Guðmundur og Hrímnir í svaka sveiflu. VÍSIR/JÓN BJÖRNSSON
Keppni á Heimsmeistaramóti íslenska hestsins hélt áfram í dag en þrumuveður setti strik í reikninginn. Í gær datt knapinn Agnar Snorri Stefánsson af baki en í samtali við Vísi fyrr í dag staðfesti Agnar Snorri að meiðsli sín væru ekki alvarleg og að hann myndi halda áfram keppni. Íslensku knöpunum gengur ágætlega.

Guðmundur Björgvinsson á Hrímni frá Ósi er efstur eftir forkeppni í fjórgangi sem var rétt að ljúka. Þetta var glæsisýning hjá Guðmundi og skilar honum í úrslit á sunnudaginn. Guðmundur hlaut 7.47 í einkunn.

Íslenskir áhorfendur fagna efsta sætinu.VÍSIR/BJARNI ÞÓR SIGURÐSSON
Það er ekki langt í keppendur í öðru sæti, Johanna Tryggvason á Fönix frá Syðra-Holti, sem keppir fyrir Þýskaland deilir öðru sæti með Nils Christian Larsen, Noregi, þau fengu bæði 7.43.  Nokkuð er í keppanda í 4.sæti, Jolly Schrenk, þýskalandi er í 4. sæti með 7.30.

Tveir keppendur eru í 5.sæti með sömu einkunn. Anne Stine Haugen, Noregi, á Muna frá Kvistum og Pierre Sandsten Hoyosm, Svípjóð, á Falki från Karlsro hlutu einkunina 7.13. Pierre er í ungmennaflokknum og fer því í úrslit í fjórgangi í sínum flokki.  





Lisa Schürger glímir hér við úrhelli, þrumur og eldingar.VÍSIR/JÓN BJÖRNSSON
Það má því segja að vonarstjarna Þjóðverja og núverandi heimsmeistari í fjórgangi, Frauke Schenzel, hafi verið bjargað af bjöllunni. Hún lenti í 11.sæti og hefði að öllu jöfnu ekki sloppið í B-úrslit en fær pláss í stað Pierrre.

Kristín Lárusdóttir, eins og Frauke Schenzel og hestur hennar, Óskadís vom Habichtswald eiga enn möguleika á að komast í A-úrslit á sunnudag því sigur í B-úrslitum gefur aðgöngumiða í úrslitin.

Úrhellis rigning með þrumum og eldingum brast á þegar Lisa Schürger var í brautinni, það verður að teljast henni til hróss að hafa klárað sýninguna í þessum látum. Hún fær að keppa aftur seinna í dag.

Á heimasíðu mótsins fá finna upplýsingar um úrslit auk þess sem að hægt er að horfa á beina útsendingu frá mótinu.


Tengdar fréttir

Íslenskur knapi fluttur á sjúkrahús eftir fall

Talið er að ístaðsól hafi slitnað þegar Agnar Snorri Stefánsson var að hægja niður ferðina af stökki með þeim afleiðingum af hann féll af baki og lenti á nálægu grindverki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×