Innlent

Ók á fimm bíla þegar hann ætlaði að leggja

Gissur Sigurðsson skrifar
Ökumanni, sem ætlaði að leggja bíl sínum í stæði á höfuðborgarsvæðinu snemma í gærkvöldi tókst ekki betur en svo, að hann ók utan í fimm aðra kyrrstæða bíla áður  en yfir lauk.

Maðurinn, sem var ódrukkinn gaf lögreglu þá skýringu að bíllinn hafi orðið stjórnlaus, en skki segir í skeyti lögreglu hvað olli því.

Hann er hinsvegar grunaður um ölvun, ökumaðurinn sem ók skömmu síðar utan í kyrrstæðan bíl og stakk af. Hann er ófundinn, en tveir aðrir voru teknir úr umferð fyrir ölvunarakstur, án þess að hafa valdið tjóni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×