Fótbolti

Nürnberg náði í stig gegn toppliði Dortmund

Stefán Árni Pálsson skrifar
Leikmenn Nürnberg fagna hér jöfnunarmarkinu.
Leikmenn Nürnberg fagna hér jöfnunarmarkinu.
Fimm leikir fóru fram í þýsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag og má þar helst nefna frábært stig sem lið Nürnberg fékk gegn Dortmund í 1-1 jafntefli.

Marcel Schmelzer skoraði fyrsta mark leiksins fyrir Dortmund rétt fyrir lok hálfleiksins en það var Per Nilsson sem jafnaði metin fyrir heimamenn í upphafi síðari hálfleiksins.

Bayern Leverkusen vann frábæran sigur á Mainz, 4-1, en leikurinn fór fram á heimavelli Mainz. Robbie Kruse skoraði tvö mörk fyrir Leverkusen í leiknum og þeir Lars Bender og Stefan Kiessling með sitt markið hvort.

Dortmund er enn í efsta sæti deildarinnar með 16 stig en Bayern Leverkusen koma fast á eftir þeim með 15 stig. Bayern Munchen eru í þriðja sætinu með 13 stig en eiga einn leik til góða. 

Úrslit dagsins:

Nürnberg 1 - 1 Dortmund   

Hamburg  0 - 2 Bremen    

Hannover 2 - 1 Augsburg    

Mainz  1 - 4 Leverkusen   

Wolfsburg 2 - 1 Hoffenheim




Fleiri fréttir

Sjá meira


×