Bíó og sjónvarp

Nýtt sýnishorn úr X-Men

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Leikkonan Ellen Page kynnti nýtt sýnishorn úr kvikmyndinni X-Men: Days of Future Past á MTV Movie-verðlaunahátíðinni í Los Angeles í nótt.

Ellen leikur í myndinni, sem frumsýnd verður 23. maí, ásamt Jennifer Lawrence, Michael Fassbender, Peter Dinklage og James McAvoy.

Í sýnihorninu sjást Sentinel-vélmenni meðal annars svífa niður úr geimskipi en vélmennin eru búin til til að tortíma þeim sem stökkbreyttir eru.

Ellen Page.Vísir/Getty





Fleiri fréttir

Sjá meira


×