Bíó og sjónvarp

Nýtt og gamalt í Bíó Paradís

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Indversk kvikmyndahátíð hófst í Bíó Paradís á þriðjudag og stendur til 13. apríl. Þetta er í annað sinn sem hátíðin er haldin en hún var haldin í fyrsta sinn árið 2012.

Á hátíðinni í ár eru kynntar til leiks sex nýlegar kvikmyndir og ein klassísk kvikmynd í nýútkominni þrívíddarútgáfu, karrívestrinn Sholay sem er af mörgum talinn meðal bestu indversku kvikmyndanna á tuttugustu öldinni.

Meðal kvikmynda sem sýndar eru á hátíðinni er English Vinglish eða Enskunámið eins og hún heitir á íslensku. Hún fjallar um unga húsmóður sem er mjög fær í að gera indverska eftirréttinni „laddoo“. Henni finnst hún ekki vera metin að verðleikum heima hjá sér vegna þess að hana skortir enskukunnáttu. Þegar hún er beðin að koma til New York til þess að undirbúa brúðkaup frænku sinnar fær hún óvænt tækifæri til þess að bæta sig í enskunni og styrkja sjálfsálitið í leiðinni. Hún fer að endurskoða líf sitt í framhaldi af því og sambandið við fjölskylduna.

Myndin er byggð á ævi móður leikstjórans, Sanjay Leela Bhansali, og lýsir vel erfiðleikum og skondnum uppákomum sem nýbúi í ókunnri stórborg má búast við.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×