Skoðun

Nýrað sem hvarf

Eva Bjarnadóttir skrifar

Fyrr í sumar heimsótti ég Lettland á vegum Norðurlandaráðs. Við vildum kynna okkur aðgerðir stjórnvalda í mansalsmálum. Áður en ég lagði af stað kynnti ég mér stöðuna á Íslandi. Hvernig við finnum fórnarlömbin, hver þau eru og hvaða aðstoð þau fá.

En ég hafði ekki leitt hugann að því að Lettland er upprunaland fórnarlamba mansals. Það varð því harkalegt raunveruleikatékk að sitja fyrsta fundinn með samtökum sem sjá um að kenna skólabörnum að varast mansal. Þau fá leiðbeiningar um hvernig gylliboð um atvinnu erlendis líta út. Þau læra að fletta fyrirtækjum upp í fyrirtækjaskrá til að ganga úr skugga um að þau séu raunveruleg. Og þau elstu fá að vita hvað getur gerst. Ég hafði heldur ekki haft ímyndunarafl í allar ólíku leiðirnar sem notaðar eru til að ræna fólki og neyða það til vinnu eða kynlífsþrælkunar. Fórnarlömbin eru yfirleitt í veikri félagslegri stöðu. Þau búa við fátækt, jafnvel fötlun og yfirleitt mikið óöryggi. Þegar þau átta sig á stöðunni er oft lítið um bjargir og kannski enginn sem saknar þeirra.

Örfáir komast aftur heim við illan leik. Við heyrðum af manni sem vann við skógarhögg í Finnlandi. Hann hafði vaknað úr roti illa marinn og þjáður, en þorði ekki að leita sér aðstoðar. Þegar heim til Lettlands var komið kom í ljós að annað nýra hans var horfið. Því hafði verið rænt.

Í nýrri skýrslu norskra stjórnvalda segir að lög sem banna kaup á vændi hafi minnkað mansal í Noregi. Kynlífsþrælkun er algengasta ástæða mansals og þess vegna er vændi lykilþáttur í baráttunni. Ef við skrúfum fyrir eftirspurnina fækkum við möguleikum glæpamanna, eins og þeirra sem ræna lettneskum krökkum og stela líffærum.

Á Íslandi höfum við enn ekki metið árangurinn af lögunum. Við vitum hins vegar að þegar lögreglan setur kraft í frumkvæðisvinnu við að upplýsa vændiskaupamál þá margfaldast þau. Og við vitum líka að opin réttarhöld myndu styðja betur við tilgang laganna, að minnka eftirspurn eftir vændi. Á meðan það er ábyrgð Lettlands að fræða börnin um hætturnar, þá er það okkar ábyrgð að sjá til þess að mansal þrífist ekki á Íslandi.




Skoðun

Skoðun

Saman gegn ríkisofbeldi

Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson,Örlygur Steinar Arnaldsson,Sigurhjörtur Pálmason,Simon Valentin Hirt,Kristbjörg Arna E. Þorvaldsdóttir,Ari Logn,Margrét Rut Eddudóttir skrifar

Sjá meira


×