Innlent

Nýr ræðismaður Rússlands á Sauðárkróki

Garðar Örn Úlfarsson skrifar
Ólafur Ágúst Andrésson er nýr kjörræðismaður Rússlands á Íslandi.
Ólafur Ágúst Andrésson er nýr kjörræðismaður Rússlands á Íslandi.
Ólafur Ágúst Andrésson hefur fengið viðurkenningu utanríkisráðuneytisins sem kjörræðismaður Rússlands með ræðismannstign á Íslandi.

„Hann hefur aðsetur að Birkihlíð 1, Sauðárkróki,“ segir um málið í fundargerð byggðaráðs Skagafjarðar þar sem útnefningin var á dagskrá í gær.

Ólafur Ágúst er forstöðumaður kjötafurðastöðvar Kaupfélags Skagfirðinga, sem flytur afurðir sínar til Rússlands.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×