Bílar

Ný og bætt útgáfa billinn.is

Finnur Thorlacius skrifar
Vefnum er ritstýrt af Njáli Gunnlaugssyni.
Vefnum er ritstýrt af Njáli Gunnlaugssyni.
Vefsíðan billinn.is er kominn út í nýrri og betri útgáfu eftir nokkuð hlé, en við ritstjórn hans hefur tekið Njáll Gunnlaugsson bílablaðamaður til margra ára. Vefurinn fór fyrst í loftið árið 2004 og hefur því verið nokkuð lengi við lýði.

"Markmiðið er að vera með skemmtilega en jafnframt gagnrýna umfjöllun um bílamál og mótorsport" sagði Njáll Gunnlaugsson í samtali við Bílablað Fréttablaðsins. "Við munum einnig reynsluaka nýjustu bílunum reglulega eins og þess er kostur og vonum að bílaumboðin verði okkur nú liðtæk í þeirri viðleitni að bjóða uppá þá þjónustu á vefnum.

Við erum í viðræðum við vefþjónustufyrirtæki að setja upp viðbætur við vefinn sem gera hann neytendavænni og munu þær breytingar vonandi líta dagsins ljós á komandi mánuðum" sagði Njáll. Vefsíðan billinn.is er rekið samhliða fréttavefnum bifhjol.is sem flytur daglegar fréttir af bifhjólum innanlands sem utan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×