Innlent

Níu af hverjum tíu bændum á móti ESB

Landbúnaðurinn skapar eða styður við tólf þúsund störf hér á landi, segir formaður BÍ. fréttablaðið/vilhelm
Landbúnaðurinn skapar eða styður við tólf þúsund störf hér á landi, segir formaður BÍ. fréttablaðið/vilhelm
Ný skoðanakönnun sýnir að yfir níutíu prósent bænda eru mótfallin inngöngu Íslands í Evrópusambandið. Þetta kom fram á árlegu Búnaðarþingi Bændasamtaka Íslands sem var sett í gær undir yfirskriftinni „Ræktum okkar land“.

Haraldur Benediktsson, formaður BÍ, fór víða í setningarræðu sinni. Hann gerði aðildarviðræður við Evrópusambandið að sérstöku umtalsefni og sagði að andstaða hjá bændum við aðild að ESB væri sterk og almenn. Nýleg könnun sýnir að 92 prósent þeirra leggjast gegn aðild en um tíu prósent úr félagatali Bændasamtakanna voru spurð álits. „Því miður dettur mér í hug leiksýning, þegar fylgst er með framgöngu aðildarviðræðna Íslands. Menn fara í orðaleiki um það hvort um sé að ræða aðlögun eða viðræður. En tvennt er alveg á hreinu. Ísland hefur nú í landbúnaðarmálum játast að gangast undir sameiginlega landbúnaðarstefnu ESB og hér á landi vinna stjórnvöld að aðlögun, þótt til pólitísks heimabrúks sé hún kölluð öðrum nöfnum.“ Féllu þessi orð eftir hvassa gagnrýni á formann samninganefndarinnar, Stefán Hauk Jóhannesson, sem Haraldur sagði hafa gert lítið úr framlagi Bændasamtakanna við að rækja skyldur sínar gagnvart stjórnvöldum í aðlögunarferlinu. Þvert á móti sagði Haraldur að samtökin hefðu gert meira en þeim ætti að bera skylda til.

Fæðuöryggi var honum ofarlega í huga en í ræðu sinni sagði hann að ábyrgðarlaus framkoma lánastofnana hefði eyðilagt tvær búgreinar á íslandi, alifugla- og svínarækt. Vitnaði hann til Rannsóknarskýrslu Alþingis í því samhengi. Haraldur sagði jafnframt að veruleg verðmæti hefðu skapast af útfluttum landbúnaðarvörum. Fluttar hefðu verið út landbúnaðarafurðir fyrir um níu milljarða króna, sem væri næstum sama upphæð og öll bein framlög til bænda í búvörusamningum í ár.

Jón Bjarnason, landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra, var á svipuðum nótum í ræðu sinni og sagði að fengi ESB og talsmenn þess að ráða ferðinni yrði Ísland „að miklu leyti orðið aðili að ESB með margháttuðum aðlögunum íslenskra samfélagshátta áður en þjóðinni stendur til boða að ganga til kosninga um málið.“ Jón gagnrýndi harðlega að ESB héti háum styrkjum til verkefna hérlendis; því væri „mikilvægt að íslenskir stjórnmálamenn, stéttarfélög, sveitarfélög og allur almenningur standi fast gegn fémútum Evrópusambandsins á þessum viðsjárverðu tímum,“ að sögn ráðherra.

svavar@frettabladid.is



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×