Íslenski boltinn

Niðurstaða fallbaráttunnar: Fjölnismenn líklegastir til að koma á óvart

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Fjölnismenn gætu komið á óvart, slitið sig frá botnbaráttunni og endað um miðja deild. Sjálfir vilja þeir ná fimmta sætinu.
Fjölnismenn gætu komið á óvart, slitið sig frá botnbaráttunni og endað um miðja deild. Sjálfir vilja þeir ná fimmta sætinu. vísir/Stefán
Fréttablaðið hefur nú birt spá sína yfir liðin fjögur sem verða í fallbaráttunni í sumar. Nýliðar Leiknis hafna í botnsætinu samkvæmt spánni, ÍBV fellur með Breiðhyltingum, átjánfaldir Íslandsmeistarar ÍA halda sæti sínu með naumindum og eins og sjá má hér að ofan verður Fjölnir í sama sæti og á síðustu leiktíð.

Sumarið gæti orðið langt og strangt hjá þessum liðum og gætu innbyrðis viðureignir þeirra verið mikilvægari en oft áður. Eiginlega alveg rosalega mikilvægar.

Því má ekki gera lítið úr leik Fjölnis og ÍBV í fyrstu umferð, þar geta unnist stig sem verða mikilvæg þegar talið verður upp úr pokanum í haust. Skagamenn fara í Breiðholtið og mæta Leikni í nýliðaslag í annarri umferð og Eyjamenn fá Leiknismenn í heimsókn strax í fjórðu umferð. Stig sem vinnast á hraðmótinu geta verið gulls ígildi þegar hausta tekur, spyrjið bara Keflvíkinga.

Gunnar Már í framlínuna

Fjölnismenn hafa ekki misst jafn sterka leikmenn núna og þegar liðið féll á öðru ári í efstu deild árið 2009. Í staðinn hefur liðið bætt við sig gæðum og reynslu í Arnóri Eyvari Ólafssyni, Ólafi Páli Snorrasyni og Emil Pálssyni.

„Fjölnir gæti alveg slegið í gegn og endað um miðja deild. Þarna eru komnir menn sem hafa sannað sig, en það á eftir að koma í ljós hvort Ólafur Páll verði jafn góður með Fjölni og hann var með FH. Það er tvennt ólíkt að spila með þessum liðum,“ segir Hjörvar Hafliðason, sparkspekingur Pepsi-markanna.

Vandamálið er markaskorun hjá liðinu, en það er ekki með neinn alvöru framherja. „Ég myndi setja Gunnar Má Guðmundsson upp á topp. Hann er stór, sterkur, frábær í loftinu og merkilega fær með boltann miðað við hæð,“ segir Hjörvar sem telur að Fjölnisliðið geti alveg endað um miðja deild.

Gleymið sögunni í bili

Skaginn ætti ekki að vera í vandræðum með að skora mörg, en liðið byrjar með tvo framherja sem gætu alveg skorað tíu mörk eða fleiri. Viðbótin við liðið hefur þó ekki verið mikil.

„Gunnlaugur og Jón Þór aðstoðarþjálfari hafa vandað valið á leikmönnum enda ekki til peningar til að hrúga þeim inn. Ungir leikmenn hafa tekið framfaraskref og þar gætu verið 2-3 nýir leikmenn líka,“ segir Hjörtur Hjartarson, annar spekingur Pepsi-markanna.

Liðið verður að einbeita sér að því að festa sig í sessi í efstu deild, ekki horfa hærra en það í bili. „Menn verða að leggja glæsta sögu félagsins til hliðar í bili. Þetta getur orðið erfitt fyrir ÍA,“ segir Hjörtur.

Stemning og hjarta lykilinn

Leikni og ÍBV er spáð falli í 1. deildina. Leiknir er í fyrsta skipti í sögu félagsins í efstu deild og gerði ágætlega á félagaskiptamarkaðnum. Það styrkti þær stöður sem þurfti.

„Þetta verður mjög erfitt hjá Leikni engu að síður. Það er engin spurning. Þetta snýst á margan hátt um stemningu og þá verður Eyjólfur Tómasson í markinu að spila jafn vel og hann gerði í 1. deildinni í fyrra,“ segir Hjörvar um Leikni.

Eyjamenn hafa misst alla sína bestu menn og fyllt í skarðið með þremur Frömurum og þremur útlendingum. „Nýr þjálfari liðsins er frá Akranesi og veit að hjartað getur fleytt liðum langt, en hvort það dugi að þessu sinni verður að koma í ljós. Það þarf svakalega margt að ganga upp svo liðið verði ekki í fallbaráttu í sumar,“ segir Hjörtur Hjartason.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×