Sport

NFL: Reimarnar út eins og í Ace Ventura og Seattle vann

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Sparkarinn Blair Walsh brást á úrslitastundu.
Sparkarinn Blair Walsh brást á úrslitastundu. Vísir/Getty
Seattle Seahawks liðið hafði heldur betur heppnina með sér í naumum 10-9 sigri á Minnesota Vikings í leik liðanna í úrslitakeppni Þjóðardeildar ameríska fótboltans í kvöld.

Minnesota Vikings liðsins fékk kjörið tækifæri til að tryggja sér sigurinn í leiknum rétt fyrir leikslok en sparkarinn Blair Walsh brenndi af úr auðveldu færi.

Þegar myndband að sparkinu var skoðað nánar kom í ljós að sá sem stillti boltanum upp fyrir Blair Walsh, snéri reimunum út, eins og frægt var í Ace Ventura myndinni um árið. Þetta var í annað skiptið í leiknum sem það gerðist en að þessu sinni misheppnaðist sparkið algjörlega.

Blair Walsh hafði skorað þrjú vallarmörk fyrri í leiknum og komið liði Víkingana í 9-0. Nú er bara að vona hans vegna að hann komist heill í gegnum þetta mótlæti ólíkt sparkaranum ógleymanlega Ray Finkle í Ace Ventura myndinni um árið.

Seattle-liðið, sem hefur komist í Súper Bowl leikinn undan farin tvö ár, skoraði tíu stig í fjórða leikhlutanum og komst yfir. Þeir höfðu hinsvegar misst frá sér forystu í fjórða leikhluta í mörgum leikjum á leiktíðinni og það stefndi í svipuð örlög.  

Minnesota Vikings fékk lokasóknina í leiknum og var þarna komið í frábæra stöðu til að tryggja sér sigur og sæti í næstu umferð. Hin frábæra Seattle-vörn náði ekki að stoppa sókn Minnesota sem gat stillt upp í dauðafæri fyrir Blair Walsh.

Það mátti sjá á viðbrögðum allra á vellinum og þá sérstaklega leikmönnum Seattle Seahawks hversu það komið mikið á óvart að Blair Walsh náði ekki að hitta á milli súlanna.

Stjörnuleikmenn Seattle, sem áttu margir slakan dag í frostinu í Minneapolis, þökkuðu líka guð og æðri máttarvöldum fyrir enda voru þeir búnir að afskrifa sigurinn eins og flestir sem urðu vitni að þessum ótrúlega leik.

Seattle Seahawks mætir Carolina Panthers í undanúrslitum Þjóðardeildarinnar um næstu helgi en Arizona Cardinals mætir annaðhvort Washington Redskins eða Green Bay Packers sem spila seinna í kvöld í beinni á Stöð 2 Sport.

Það var tutttugu stiga frost á meðan leiknum stóð.Vísir/Getty
NFL

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×