Sport

NFL: Patriots og Cardinals komust áfram í nótt en á mjög ólíkan hátt

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Larry Fitzgerald fagnar hér sigur-snertimarki sínu.
Larry Fitzgerald fagnar hér sigur-snertimarki sínu. Vísir/Getty
New England Patriots og Arizona Cardinals tryggðu sér sæti í úrslitum sinna deilda í úrslitakeppni ameríska fótboltans í nótt en bæði lið unnu leiki sína á heimavelli sem voru jafnframt fyrstu heimasigrar úrslitakeppni NFL-deildarinnar í ár.

New England Patriots og Arizona Cardinals sátu hjá í fyrstu umferðinni um síðustu helgi og biðu þá eftir að sjá hverjir mótherjarnir yrðu. Allir fjórir leikirnir um síðustu helgi unnust á útivelli en sigurganga útiliðanna endaði í nótt.

Það var þó mikill munur á sigrum liðanna tveggja í nótt, New England Patriots vann sannfærandi sigur á Kansas City Chiefs 27-20 en það var talsvert meiri dramatík þegar Arizona Cardinals vann 26-20 sigur á Green Bay Packers í framlengingu.

Green Bay Packers náði að koma leiknum á móti Cardinals í framlengingu með ótrúlegri lokasókn þar sem Aaron Rodgers fann Jeff Janis í endamarkinu með svokallaðri „Hail Mary" sendingu en hann henti boltanum þá með þeirri von að einhver hans manna næði boltanum.  Þetta var í annað skiptið á tímabilinu sem svona sending heppnast hjá Rodgers.

Arizona Cardinals átti hinsvegar frábær tilþrif eftir og reynsluboltinn Larry Fitzgerald skoraði sigur-snertimarkið eftir sendingu frá Carson Palmer í fyrstu sókn framlengingarinnar.  Leikstjórnandinn Carson Palmer hefur átt frábært tímabil en hann vann þarna sinn fyrsta sigur í úrslitakeppni.

Arizona Cardinals er þar með komið í úrslitaleik Þjóðardeildarinnar og mætir þar annaðhvort Carolina Panthers eða Seattle Seahawks. Ef Carolina Panthers vinnur þá verður Arizona á útivelli en liðið fær heimaleik ef Seattle Seahawks kemst áfram.

Rob Gronkowski fagnar öðru snertimarka sinna.Vísir/Getty
Tom Brady og Rob Gronkowski fóru á kostum þegar ríkjandi NFL-meistarar New England Patriots liðið vann 27-20 sigur á Kansas City Chiefs og tryggði sér sæti í úrslitaleik Ameríkudeildarinnar fimmta árið í röð.

Rob Gronkowski skoraði tvö snertimörk í leiknum og Tom Brady stýrði leik liðsins frábærlega auk þess að skora eitt snertimark sjálfur með svokallaðri leikstjórnanda-laumu. Gronkowski skoraði snertimark í fyrstu sókn leiksins og Patroits-menn voru því með frumkvæðið frá byrjun.

Patriots-liðið endaði með þessu ellefu leikja sigurgöngu Kansas City Chiefs og tryggði sér sæti í úrslitaleik Ameríkudeildarinnar þar sem liðið mætir annaðhvort Pittsburgh Steelers eða Denver Broncos. Vinni Denver Broncos sinn leik í kvöld verður  New England Patriots á útivelli en liðið fær heimaleik á móti Pittsburgh Steelers.

Öll úrslitakeppni NFL-deildarinnar er í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport en tveir leikir fara fram í dag. Klukkan 18.05 tekur Carolina Panthers á móti Seattle Seahawks og klukkan 21:40 mætast Denver Broncos og Pittsburgh Steelers. Það er von á tveimur skemmtilegum leikjum.

NFL

Tengdar fréttir

Lætur leikmenn horfa í sólina

Tom Brady, leikstjórnandi New England Patriots, er algjör fullkomnunarsinni þegar kemur að undirbúningi fyrir leiki liðsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×