Fótbolti

Neymar tryggði Barcelona sigur í bikarnum

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Neymar skoraði sigurmarkið.
Neymar skoraði sigurmarkið. vísir/getty
Barcelona er 1-0 yfir í einvígi sínu gegn Real Sociedad í átta liða úrslitum spænska Konungsbikarsins en Börsungar unnu eins marks sigur í Baskalandi í kvöld.

Eina mark leiksins skoraði Brasilíumaðurinn Neymar úr vítaspyrnu á 21. mínútu en seinni leikurinn fer fram eftir viku.

Atlético Madrid er í enn betri málum en það vann öruggan sigur á Eibar á heimavelli sínum í höfuðborginni í kvöld, 3-0.

Antoine Griezmann kom Atlético yfir, 1-0, á 28. mínútu og þannig var staðan í hálfleik. Ángel Correa tvöfaldaði forskotið á 60. mínútu og franski markahrókurinn Kevin Gameiro innsiglaði 3-0 sigur heimamanna á 68. mínútu leiksins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×