Innlent

Nemendur í Hagaskóla plata foreldra sína til að komast heim

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Nemendur í Hagaskóla söfnuðu 2,4 milljónum króna í góðgerðarviku á dögunum. Ágóðinn rann til sýrlenskra flóttamanna sem von er á til Íslands og samtakanna Útmeða, stuðningshóp sem fyrirbyggir sjálfsvíg ungmenna.
Nemendur í Hagaskóla söfnuðu 2,4 milljónum króna í góðgerðarviku á dögunum. Ágóðinn rann til sýrlenskra flóttamanna sem von er á til Íslands og samtakanna Útmeða, stuðningshóp sem fyrirbyggir sjálfsvíg ungmenna. Vísir/Vilhelm
Skólastjóri í Hagaskóla hefur séð sig knúinn til að senda foreldrum barna í skólanum póst. Hagaskóli er fyrir nemendur í 8., 9. og 10. bekk en borið hefur á því að þau vilji komast heim úr skólanum í dag og fari heldur frjálslega með sannleikann.

Í tölvupósti sem Ómar Örn Magnússon skólastjóri sendir til foreldra barna við skólann í dag kemur fram að nokkuð mörg börn í skólanum séu með leyfi frá foreldrum sínum. Það sé ákvörðun foreldra hvort þeir sæki um leyfi fyrir börn sín eins og fram hafi komið í tilkynningum frá yfirvöldum.

Hins vegar er sú staða komin upp að mörg börn vilja fara heim og hef ég fengið upplýsingar um að þau hafi verið að bera alls konar upplýsingar í foreldra. Það sem ég hef m.a. heyrt er að kennarar séu veðurtepptir heima hjá sér, að kennarar segi að nemendur megi fara heim, að allir í bekknum séu farnir heim o.sv.frv.“

Ómar Örn segir allt þetta rangt. Í Hagaskóla verði kennsla út daginn og forföll þess eina kennara sem sé veikur verði mönnuð. Nemendur sem ekki eru veikir eða með leyfi fái að sjálfsögðu skráða fjarvist.

 

Ragnheiður Stephensen, kennari við Garðaskóla.Mynd af vefsíðu Garðabæjar
„Væla sig heim“

Vísir fjallaði fyrr í dag
um stöðu mála í Garðaskóla í Garðabæ þar sem kennari við skólann gagnrýnir foreldra harðlega.

„Er aumingjauppeldi orðið normið?“ spyr kennarinn Ragnheiður Stephensen sem telur um 75 prósent nemenda í 10. bekk vanta í skólann.

„Þeir sem eru mættir liggja núna í símunum og væla sig heim. Þau eru í prófum. Eru þetta skilaboðin sem á að senda starfskröftum framtíðarinnar? Ég treysti því að allir þessir foreldrar séu þá heima hjá sér líka fyrst að veðrið er svona vont!“  


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×