Innlent

Neita tollgreiðslu til vegagerðar í öðrum landshlutum

Garðar Örn Úlfarsson skrifar
Reykjanesbrautin hefur verið tvöfölduð að miklu leyti.
Reykjanesbrautin hefur verið tvöfölduð að miklu leyti. vísir/Gva
„Það að fara að rukka fólk um tolla sem sækir sína vinnu til að borga skatt til samfélagsins er ekki líðandi og gengur gegn jafnræði íbúa,“ segir bæjarstjórn Voga sem kveðst mótmæla harðlega hugmyndum Jóns Gunnarssonar samgönguráðherra um vegatolla á Reykjanesbraut og öðrum stoðbrautum.

„Meirihluti íbúa sveitarfélagsins Voga sækir vinnu bæði á höfuðborgarsvæðið og einnig til annarra sveitarfélaga á Reykjanesi. Það yrði mikil mismunun að íbúar á Reykjanesi muni þurfa að borga vegatolla við það að fara í vinnu en ekki íbúar höfuðborgarsvæðisins sem vinna á höfuðborgarsvæðinu,“ segir bæjarráðið.

Vogamenn benda á að búið sé að tvöfalda Reykjanesbraut í landi Voga. „Og mótmælir bæjarstjórn sveitarfélagsins því alfarið að íbúar þess þurfi að borga vegaframkvæmdir í öðrum landshlutum, nóg er borgað í dag í formi eldsneytisgjalds og bifreiðagjalda,“ segir í bókun bæjarráðs og bendir samgönguráðherra á að Reykjanesbraut sé fjölfarnasti vegur utan þéttbýlis. „Hafa íbúar ekki annan raunhæfan valkost til að komast inn á höfuðborgarsvæðið og væru því nauðbeygðir til að greiða boðaðan vegtoll.“

Að endingu tiltekur bæjarráðið að á hinum Norðurlöndunum sé veittur skattaafsláttur til þeirra sem sækja atvinnu um langan veg til jöfnunar á ferðakostnaði. „Hér á Íslandi hefur ríkið hins vegar haft þá sem búa fjarri vinnustað sínum að féþúfu og nú er áformað að bæta enn við þann kostnað og auka á ójöfnuðinn.“ 

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.


Tengdar fréttir

Daglegir vegfarendur fái verulegan afslátt

Hugmyndir um vegatolla á vegum til og frá höfuðborgarsvæðinu eru í vinnslu í samgönguráðuneytinu. Bæjarstjórar í nærliggjandi sveitarfélögum eru ósammála um ágæti tollanna. Hugmyndin ekki verið rædd í ríkisstjórninni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×