Lífið

NBC endurgerir Rétt

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Sigurjón Kjartansson gerði handritið að Rétti.
Sigurjón Kjartansson gerði handritið að Rétti.
Til stendur að endurgera íslensku þættina Réttur fyrir bandarísku sjónvarpsstöðina NBC.

Það er Howard Gordon og Alex Cary, sem framleiddu Homeland þættina, sem sýndir voru á Stöð 2 í fyrra við miklar vinsældir, sem mun framleiða nýju þættina.

Fyrsta þáttaröðin af rétti var sýnd á Íslandi árið 2009, en þær eru núna orðnar tvær. Það var leikstjórinn Sævar Guðmundsson sem leikstýrði þáttunum en Sigurjón Kjartansson skrifaði handritið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×