Fótbolti

Napoli hafði betur gegn AC Milan í stórleik helgarinnar á Ítalíu

Stefán Árni Pálsson skrifar
Milik fagnar hér marki sínu í kvöld
Milik fagnar hér marki sínu í kvöld vísir/getty
Stórleikur helgarinnar í ítalska boltanum var viðureign Napoli og AC Milan en hann fór fram í kvöld í Napoli.

Leikurinn olli svo sannarlega engum vonbrigðum en Napoli vann frábæran 4-2 sigur í hörku leik.

Arkadiusz Milik, leikmaður Napoli, skoraði tvö fyrstu mörkin á fyrsta hálftímanum og var staðan orðin 2-0.

Mbaye Niang minnkaði muninn í upphafi síðari hálfleiks og það var síðan Suso sem jafnaði fyrir AC Milan á 55. mínútu.

Jose Maria Callejon tryggði Napoli sigurinn stundarfjórðungi fyrir leikslok og brutust út mikil fagnaðarlæti í Napoli. Alessio Romagnoli, leikmaður AC Milan, gerði sjálfsmark undir blálok leiksins og niðurstaðan 4-2 sigur heimamanna. 

Napoli er með fjögur stig eftir tvær umferðir en AC Milan er með þrjú stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×