Skoðun

Námsmenn eiga betra skilið en Illugafrumvarpið

Óskar Steinn Ómarsson skrifar
Ég þakka viðbrögðin sem ég hef fengið við grein minni, „Höfnum Illugafrumvarpinu“, sem birtist í Fréttablaðinu 22. ágúst sl. Þar gagnrýndi ég frumvarp menntamálaráðherra um breytingar á námslánakerfinu og benti á að þær kæmu tekjulágum, barnafólki og námsmönnum erlendis illa. Í svari Hildar Sverrisdóttur, borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, við greininni fullyrti hún að orð mín stæðust ekki skoðun. Skoðum þetta nánar.

Í greiningu sem ráðgjafarfyrirtækið Summa gerði á Illugafrumvarpinu er farið yfir áhrif breytinganna á greiðslubyrði mismunandi hópa. Tökum tvö dæmi:

1. Einstaklingur sem fer í fimm ára háskólanám og fær lánað fyrir framfærslu en ekki skólagjöldum. Til þess að vera með lægri greiðslubyrði í nýju kerfi þarf viðkomandi að vera með tekjur hærri en 550 þúsund krónur á mánuði. Allir undir þeim tekjum koma verr út í fyrirhuguðu kerfi Illuga. Í þeim hópi eru m.a. stéttir leikskóla- og grunnskólakennara.

2. Einstaklingur fer í fimm ára háskólanám, fær lánað fyrir bæði framfærslu og skólagjöldum. Til þess að vera með lægri greiðslubyrði í nýju kerfi þarf viðkomandi að vera með tekjur hærri en 900 þúsund krónur á mánuði. Þessi breyting bitnar sérstaklega á þeim sem fá lánað fyrir skólagjöldum í háskólum erlendis.

Staða einstaklinga með börn á framfæri versnar mikið í nýja kerfinu, eins og kemur fram í umsögn Stúdentaráðs Háskóla Íslands við frumvarpið. Þar segir orðrétt: „Ef litið er til 5 ára náms, þá eru flestir einstæðir foreldar að koma verr út úr nýja frumvarpinu, burtséð frá því hvaða faggrein þeir hafa tekið sér fyrir hendur. Heildarendurgreiðsla þeirra yrði meiri í boðuðu kerfi, heldur en því sem þegar er til staðar.“

Miklar skerðingar

Námsmenn erlendis, sem þegar hafa mátt þola miklar skerðingar frá núverandi ríkisstjórn, koma illa út úr ýmsum breytingum frumvarpsins. Meðal þeirra breytinga sem SÍNE, Samband íslenskra námsmanna erlendis, hefur mótmælt er að afborganir lána miðist við heildarfjárhæð láns, ekki tekjur viðkomandi lánþega. Á vef SÍNE segir: „Það gefur augaleið að þetta ákvæði á eftir að bitna harðast á fjölskyldufólki sem oft þarf að taka hærri lán en aðrir og þeim einstaklingum sem sækja sér nám erlendis, en það hefur nánast undantekningarlaust í för með sér hærri kostnað, ýmist í framfærslu eða vegna skólagjalda.“

Af öllu þessu má vera ljóst að verði Illugafrumvarpið að lögum mun það hafa slæmar afleiðingar fyrir fólk með lág laun, fólk með börn og fólk sem fer í nám erlendis. Hlutverki Lánasjóðs íslenskra námsmanna sem félagslegs jöfnunarsjóðs verður kippt úr sambandi. Þessum staðreyndum geta Hildur Sverrisdóttir og aðrir stuðningsmenn frumvarpsins ekki litið fram hjá. Ég er sannfærður um að hægt sé að innleiða styrki í íslensku menntakerfi án þess að gera námslán þessara hópa dýrari en þau eru í dag. Námsmenn eiga það skilið.

Þessi grein birtist upphaflega í Fréttablaðinu.




Skoðun

Skoðun

Saman gegn ríkisofbeldi

Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson,Örlygur Steinar Arnaldsson,Sigurhjörtur Pálmason,Simon Valentin Hirt,Kristbjörg Arna E. Þorvaldsdóttir,Ari Logn,Margrét Rut Eddudóttir skrifar

Sjá meira


×