Innlent

Náðu ekki samkomulagi um fiskverð en viðræðurnar þokast áfram

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Guðmundur Ragnarsson formaður Félags vélstjóra og málmtæknimanna.
Guðmundur Ragnarsson formaður Félags vélstjóra og málmtæknimanna. Vísir
Ekki náðist samkomulag um fiskverð á fundi samninganefnda sjómanna og samninganefndar útgerðarmanna í dag en Guðmundur Ragnarsson formaður Félags vélstjóra og málmtæknimanna segir þó að fundurinn hafi gengið vel en honum lauk um sexleytið.

Verðlagsmálin eru það eina sem rætt er nú og vilja menn klára það áður en næstu skref verða tekin. Sjómenn hafa boðað verkfall sem hefjast á klukkan 23 næstkomandi fimmtudag.

„Menn eru allavega að tala saman og ég held að það sé hægt að segja það að menn séu að tala á sömu nótunum. Á meðan menn eru að ræða saman þá miðast þetta áfram en svo hittumst við aftur klukkan 16 á morgun. Menn ætla svona að vinna heimavinnu og fara yfir þetta og svo fæst vonandi einhver niðurstaða varðandi fiskverðið á morgun en þá er allt annað eftir,“ segir Guðmundur í samtali við Vísi.

Kjarasamningar sjómanna og útvegsmanna hafa verið lausir síðan í árslok 2010. Samninganefndir hafa fundað með reglulegu millibili frá árinu 2012, en viðræður hófust fyrir alvöru síðasta haust.

Aðspurður kveðst Guðmundur bjartsýnn á að menn nái saman áður en verkfall skellur á.

„Á meðan menn eru að tala í sömu áttina þá er eitthvað að gerast,“ segir hann.

Sextán ár eru frá því að sjómenn fóru síðast í verkfall, en þá voru lög sett á verkfallið og gerðardómur fenginn til að leysa úr því.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×