Lífið

Náðu ekki að bjarga hjónabandinu

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Kris er búin að sækja um skilnað við Bruce.
Kris er búin að sækja um skilnað við Bruce. vísir/getty
Raunveruleikastjarnan Kris Jenner er búin að sækja um skilnað við eiginmann sinn, Bruce Jenner, fyrrverandi tugþrautarkappa, ellefu mánuðum eftir að þau skildu að borði og sæng.

Kris sækir um sameiginlegt forræði yfir sautján ára dóttur þeirra, Kylie, en Kendall dóttir þeirra blandast ekki inn í skilnaðinn þar sem hún hefur náð átján ára aldri.

Kris á auk dætranna tveggja fjögur börn, þau Kourtney, Khloé, Kim og Robert Kardashian.

Kris vill einnig eiga alla skartgripi sína og annað sem hún hefur eignast eftir að þau skildu að borði og sæng.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×