Fótbolti

Müller gerði betur en Messi, Ronaldo og Raul

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Thomas Müller fagnar marki sínu í gær.
Thomas Müller fagnar marki sínu í gær. Vísir/Getty
Sigur Bayern München á Olympiakos í Meistaradeild Evrópu í gær var sérstakur fyrir framherjann Thomas Müller, sem skoraði eitt marka Bayern í leiknum.

Sjá einnig: Alfreð og félagar fengu skell í München

Þetta var 50. sigur Müller í Meistaradeildinni en eins og sjá má á listanum hér fyrir neðan er Þjóðverjinn öflugi yngsti leikmaður sögunnar sem nær þeim áfanga.

Raul átti gamla metið en hvorki Lionel Messi né Cristiano Ronaldo tókst að slá honum við. Müller gerði það hins vegar en líklegt er að metið muni standa í einhver ár til viðbótar.

Frammistaða Bayern í gær var mögnuð en ásamt Müller komust þeir Douglas Costa, Robert Lewandowski og Kingsley Coman á blað.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×