Sport

Murray vann Nadal í fyrsta skipti á leir

Anton Ingi Leifsson skrifar
Murray fagnar sigrinum í kvöld.
Murray fagnar sigrinum í kvöld. vísir/getty
Andy Murray vann sinn fyrsta sigur á leir gegn Rafael Nadal í úrslitaleik spænska meistaramótsins, en úrslitaleikurinn fór fram í kvöld.

Bretinn Murray hefur aldrei unnið Nadal á leirnum í síðustu sex viðureignum þeirra, en í kvöld fóru leikirnir 6-3 og 6-2.

Nadal gat unnið sinn fimmta sigur í Madrid, en Bretinn kom sá og sigraði.

„Ég spilaði mjög vel. Ég gerði mjög fá mistök og ég breytti hæðinni á boltanum sem var ástæða þess að hann átti í erfiðleikum með þessa bolta frá mér,” sagði Murray við Sky Sports.

„Á síðasta ári var ég ekki nægilega tilbúinn til þess að vinna,” sagði Murray að lokum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×