Innlent

Mótmælir mosku með bréfi prýddu hauskúpu

Karen Kjartansdóttir skrifar
Íbúar í grend við Sogamýri hafa margir fengið bréf þar sem varað er við byggingu mosku á svæðinu og hætta sem bréfritari telur stafa af múslíum er tíunduð. Formaður Félags múslíma á Íslandi segir áróðurinn svipaður ruglinu í Breivik.

Hér í Sogamýri er fyrirhugað að reisa mosku í framtíðinni. Ekki eru allir sáttir við þau áform og fengu íbúar hér í grenndinni bréf í vikunni þar sem fullyrt er að mikið ónæði muni skapast af moskunni.

Eins og sést hefur bréfið hefur fyrirsögnina „Mótmælum mosku á Íslandi" og er myndskreytt með blóðugri hauskúpu og mosku. Hreint út sagt svolítið ógnvekjandi, enda sögðu íbúar á svæðinu sem fréttastofa ræddi við að það myndi vekja upp margar spurningar. Óskandi væri að borgin myndi ræða meira við íbúana í tengslum við hugmyndir um moskuna.

Varðandi ónæði þá höfum við haft hálfgildings mosku í Ármúlanum í um tíu ár og við höfum ekki ónáðað neinn. Það er náttúrulega algjör óþarfi fyrir okkur að fara upp í turn og kalla bænakall yfir Sogamýrina og hraðbrautina og strætóstöðina. Bænakallið markar upphaf bænatímans og það er gert svona hálftíma áður en bænir byrja og það er alveg nóg að gera það inn í moskunni eins og við höfum alltaf gert," segir Sverrir Agnarsson, formaður Félags múslima á Íslandi.

Bréfritarinn skrifar einnig gegn múslímum á heimasíðu sína Sverrir erfitt að því sem kemur fram í skrifum hans.

„Hann endurtekur bara boðskap af haturssíðum erlendis frá og er sjálfur með síðu vistaða erlendis þannig við getum ekkert gert í þessu. Hann notar sömu heimildir og Breivik og er greinilega næstum jafn ruglaður," segir Sverrir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×