Formúla 1

Mosley: Formúla 1 missti af tækifæri

Max Mosley
Max Mosley Vísir/Getty
Fyrrum forseti Alþjóða akstursíþróttasambandsins, Max Mosley telur að stór nöfn í Formúlu 1 séu að gera mistök. Hann telur ekki rétt að gagnrýna nýja kynslóð véla. Frekar eigi að útskýra V6 vélarnar fyrir almenningi.

Margir áhrifamiklir menn í Formúlu 1 hafa talað vélarnar niður. Helst finna þeir vélunum til foráttu minni hávaða. Bernie Ecclestone, Luca di Montezemolo, forseti Ferrari og heimsmeistarinn Sebastian Vettel eru þar á meðal.

Mosley er tilbúinn að taka vissa sök á hávaðaleysinu.

„Ef það er einhverjum að kenna er það mér að kenna,“ sagði Mosley. „Það vorum við sem skoðuðum það að innleiða þessa nýju tækni. Það tók 10 ár að ná því í gegn, og mér líkar í alvöru hljóðið,“ hélt hann áfram.

Mosley notar nú heyrnartæki eftir mikla návist við háværar vélar í rúm 40 ár. Hann bendir á að það sé of seint að bjarga heyrn sinni. Hins vegar megi bjarga næstu kynslóð.

„Því hljóðlátari sem vélarnar eru því betra fyrir fjölskyldur. Nú getur þú komið með börnin á keppnir án þess að óttast um að þeu verði heyrnarlaus,“ sagði Mosley.

Mosley segir að helsta áskorun 20. aldarinnar hafi verið öryggi ökumanna. Nú á 21. öldinni sé það umhverfið sem skiðtir mestu. Mosley telur að ef Formúla 1 tekur ekki tillit til þess geti íþróttin hugsanlega orðið úrelt.


Tengdar fréttir

Raikkonen: Við erum ekki heimskir

Ferrari byrjar nýtt tímabil í Formúlu 1 ekki vel en þar á bæ vinna menn hörðum höndum að því að gera bílinn samkeppnishæfan fyrir næstu keppnir.

Boullier: Það er hægt að ná Mercedes

Hinn franski keppnisstjóri McLaren, Eric Boullier segist ekki efast um að það sé hægt að ná Mercedes liðinu. Hann telur að brúa megi bilið þó það gæti tekið talsverðan tíma.

Dennis: McLaren verður að vinna á árinu

Liðsstjóri McLaren, Ron Dennis segir að lið hans verði að standa uppi með að minnsta kosti einn sigur eftir tímabilið. Þrátt fyrir algjöra yfirburði Mercedes hingað til.

Fyrirsjáanlegar framfarir hjá Lotus

Tæknistjóri Lotus, Nick Chester trúir því að liðið muni fara að ná í stig aftur reglulega. Liðið hefur átt afar erfitt uppdráttar á tímabilinu og er enn stigalaust.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×